Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Það verða allir sexý í Sandgerði
Þriðjudagur 29. janúar 2013 kl. 09:47

Það verða allir sexý í Sandgerði

Forsala á dansleik í Sandgerði

Stórdansleikur fer fram í hinu fornfræga Samkomuhúsi í Sandgerði laugardaginn 2. febrúar nk.

Helgi Björns og Reiðmenn Vindanna munu þar þeysa um sviðið af sinni alkunnu snilld svo dansþyrstir Suðurnesjamenn fá eitthvað fyrir sinn snúð. SS Sólar-aðdáendur fá að sjálfsögðu sinn skammt því þeirra bestu lög ásamt mörgum öðrum góðum slögurum munu hljóma í sal Samkomuhússins þetta kvöld.

Hvernig væri að ná upp góðri stemmingu, hóa saman vinum og vandamönnum og hittast öll á alvöru balli í Sandgerði. Þess má geta að 25 ára aldurstakmark er á ballið og forsala fer fram í Reynis-heimilinu í kvöld, þriðjudaginn 29. janúar kl. 19:30-21:30.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024