Það sem stríðið skildi eftir sýnt í Ramma
Í safnamiðstöðinni í Ramma var boðið upp á áhugaverða sýningu einkasafnara og Byggðasafns Reykjanesbæjar á munum tengdum hernaði. Sýningin var haldin í tengslum við Safnahelgi á Suðurnesjum sem fram fór um síðustu helgi. Byggðasafn Reykjanesbæjar hefur verið með söfnunarátak á munum og minjum sem tengjast veru varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Hluti þess sem safnast hefur var til sýnis. Ásamt Byggðasafninu sýndu fimmtán einkasafnarar hluta af afrakstri söfnunar sinnar á munum sem tengjast veru hers á Íslandi. Þar mátti m.a. sjá farartæki, líkön, vopn, orður og einkennisbúninga. Meðfylgjandi myndir voru teknar í safnamiðstöðinni og einnig á Bókasafni Reykjanesbæjar þar sem Midnight Librarian héldu tónleika.
VF-myndir: Páll Ketilsson