Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Það er ekki leiðinlegt fólk á Suðurnesjum
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
laugardaginn 18. apríl 2020 kl. 07:48

Það er ekki leiðinlegt fólk á Suðurnesjum

Hlaðvarpið Góðar sögur komið í loftið

Raddir Reykjaness heyrast nú í nýju og einlægu hlaðvarpi þar sem áhugavert fólk segir mannlegar sögur sem allir ættu að tengja við. Markmið hlaðvarpsins sem rekið er undir merkjum ímyndarátaksins Reykjanes – góðar sögur er að kynna Reykjanes og segja góðar sögur af svæðinu.

Það eru þau Dagný Maggýjar og Eyþór Sæmundsson sem standa á bak við hlaðvarpið en þau hafa bæði reynslu af fjölmiðlum og til gamans má geta að bæði hafa þau starfað á Víkurfréttum um skeið.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Okkur langaði að kynna fólkið sem býr og starfar hér á svæðinu til þess að sýna fjölbreytileikann í mannlífinu en hlaðvarp gefur tækifæri á öðruvísi miðlun og oft nánari enda hlaðvarpsviðtal oft persónulegt, bara maður á mann og míkrafónn,“ segir Dagný Maggýjar en fyrsta sería hlaðvarpsins mun innihalda tuttugu viðtöl við fólk á Reykjanesi.

„Viðtölin hafa komið skemmtilega á óvart þar sem viðmælendur hafa treyst okkur fyrir sinni sögu hvort sem hún er af áföllum og sorg eða baráttu og sigri. Sem dæmi má nefna að Sigga Dögg sem helst er þekkt fyrir beinskeitta kynfræðslu segir frá erfiðum uppvaxtarárum í Keflavík þar sem hún var kölluð drusla, Óli Óla körfuboltamaður segir frá barninu sem loksins kom og Helgi Guðfinnsson segir frá draumi um atvinnumennsku sem breyttist í martröð. Þetta eru því afar persónulegar og áhugaverðar sögur sem fólk hefur ekki heyrt áður.“

Eyþór tekur undir þetta en hann hefur burðast með hlaðvarp í maganum um nokkurt skeið.

„Ég hef hlustað á hlaðvörp frá því að grínistinn Ricky Gervais og félagar fóru í loftið um 2005. Góður iPod Classic-hlunkur gerði þá málningarvinnu að hinni mestu skemmtun. Mér finnst eins og það hafi orðið einhver straumhvörf í hlaðvarpsheiminum eftir að glæpavarpið Serial fór í loftið árið 2014. Eftir það hef ég a.m.k. ánetjast þessum miðli og hefur langað að gera mitt eigið hlaðvarp í langan tíma. Þá lá beinast við að fjalla um viðfangsefni sem maður þekkir, heimahagana sem ég hef kynnst í gegnum fjölmiðla undanfarinn áratug eða svo.“

Þættirnir eru teknir upp í hljóðverinu LubbaPeace sem sér um hljóðvinnslu og klippingu en áhersla er lögð á sem mestu gæði þáttanna. Af því tilefni var leitað til tónlistarmanna um gerð kynningarstefs og var það hinn þekkti tónlistarmaður Hermigervill sem kom með nýja útsetningu á einkennislagi Suðurnesja, Suðurnesjamenn.

„Ætlunin er ekki einungis að ræða við þekkt fólk af svæðinu, heldur líka fólkið sem á sér áhugaverða sögu sem fengi yfirleitt ekki að heyrast nema á miðli sem þessum.“

„Mér finnst svæðið oft ekki fá sitt pláss í landsmiðlunum, eins sem áhugaverða fólkið okkar fær ekki rödd eða vettvang til að skína. Ég þykist vita að á stærri miðlunum er stöku sinnum farin fréttaferð á Reykjanesið, þá á helst að ná sem flestum fréttum í einu á hundavaði. Oft líður svo ansi langt þar til önnur slík ferð er farin. Við erum einhvern veginn alltaf að súpa seyðið af því að vera ekki hluti af höfuðborginni og á sama tíma ekki nógu mikil landsbyggð heldur,“ bætir Eyþór við.

Hámhlustun til þess að dreifa huganum

Góðar sögur er aðgengilegt á helstu streymisveitum eins og Spotify og Apple, eins á vefnum reykjanes.is og er þegar komið á lista yfir vinsælustu hlaðvörp landsins.

„Það er því ljóst að íbúar á Reykjanesi hafa verið að hlusta. Vonandi halda þeir því áfram og deila sögum okkar til allra landsmanna,“ segir Dagný. „Hlaðvarp er ótrúlega vinsæll miðill og við vildum nýta tækifærið nú á þessum tímum þegar við erum í samkomubanni að dreifa huganum og bjóða upp á áhugavert efni. Við höfum stundum fengið þær niðurstöður í rannsóknum á ímynd svæðisins að fólkið hér sé leiðinlegt, sem við erum ekki alveg tilbúin að skrifa undir, en Góðar sögur eru ein leið til að leiðrétta þann misskilning.“

Góðar sögur er styrkt af Sóknar-áætlun Suðurnesja og unnið í samstarfi Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja og Markaðsstofu Reykjaness. Að lokum vilja þau Eyþór og Dagný hvetja Suðurnesjamenn til að senda inn tillögur að áhugaverðum viðmælendum, sem hafa sögu að segja.

Hlaðvörp sem Eyþór mælir með

How I built this

Sagan á bakvið sum af farsælustu fyrirtækjum heims. Einlæg viðtöl við fólkið sem hefur upplifað bakslög en svo náð ótrúlegum árangri. Hlaðvarp sem veitir innblástur.

Disgraceland

Dökka hliðin á helsta tónlistarfólki veraldar. Vandað hlaðvarp fyrir þá sem hafa áhuga á tónlist og glæpum í sama kokteilnum.

Hæ Hæ

Helgi og Hjálmar eru svo ólíkar týpur og mynda frábært tvíeyki. Ég kveiki á þeim félögum þegar ég er að vaska upp og taka til. Tilvalið léttmeti með skemmtilega vandræðalegum viðtölum og góðlegri stríðni.

S-Town

Eitt allra besta hlaðvarp sem ég hef heyrt. Ótrúleg en þó sönn saga sérvitrings í Suðurríkjum Bandaríkja með magnaðri fléttu.

This American Life

Eyrnakonfekt af bestu gerð og þáttur sem ég hlusta á ár eftir ár. Bandaríski hlaðvarps Landinn, nema bara svo miklu betri. Ég luma líka á rosalegri Ira Glass eftirhermu.

Hlaðvörp sem Dagný mælir með

Guð og menn
Þarna ræðir rakarinn og körfuboltadómarinn Röggi hvernig hann mætir Guði - og Guð honum á alveg mögnuðu ferðalagi. Ekki bara fyrir trúaða heldur meira fyrir forvitna.

Skúffuskáld
Anna Margrétt hjá LubbaPeace hljóðverinu spjallar við skúffuskáld og ræðir ritstörf og drauma.

Þokan
Tvær ungar mæður ræða um reynslu og lífsreynslu þegar barn kemur í heiminn. Virkilega einlægt og afar hreinskilið - ekkert er skilið undan. Flottar stelpur.

Dying for sex

Dauðvona kona skilur við mann sinn til fjölda ára og ákveður að mæta kynlífi með opnum huga og ræðir ævintýrin sem úr því verða með vinkonu sinni í þessu hlaðvarpi og þar kemur ýmislegt áhugavert í ljós.

Sigga Dögg
Siggu Dögg kemur allt við sem snýr að kynlífi og eins og þeir vita sem þekkja hana þá er þetta fróðlegt, hreinskilið og umfram allt skemmtilegt, svona eins og hún.

MARGT FLEIRA Í FJÖLBREYTTUM 76 BLS. VÍKURFRÉTTUM VIKUNNAR