„Það er eitthvað svo notalegt við þetta fyrirtæki“
– Íris Sigtryggsdóttir verslunarstjóri BYKO Suðurnes í VF-viðtali
Keflvíkingurinn Íris Sigtryggsdóttir tók við stöðu verslunarstjóra hjá BYKO Suðurnesjum fyrir réttu ári síðan en áður hafði hún verið svæðisstjóri hjá upplýsingaveitunni JÁ í Reykjanesbæ í átta ár og reyndi svo fyrir sér hjá hugbúnaðarfyrirtæki áður en starfið hjá BYKO bauðst henni.
Byggingariðnaðurinn á Suðurnesjum hefur verið í lægð undanfarin ár en frá því Íris tók við starfi verslunarstjóra hefur hún fundið vel hvernig allt er á uppleið á svæðinu. „Það er ótrúlega mikill viðsnúningur hér á stuttum tíma,“ segir Íris. „Það er allt á fullu, menn jákvæðir og horfa bjartari augum fram á veginn. Þetta er það sem við sjáum og heyrum á verktökum og iðnaðarmönnum þannig að það er mjög spennandi að taka við svona verslun á þessum tíma,“ segir Íris.
– Hvernig datt þér í hug að gerast verslunarstjóri í byggingarvöruverslun?
„Ég stýrði áður þjónustu- og upplýsingafyrirtæki þar sem nánast störfuðu eingöngu kvenmenn og fyrirtækið kvenlægt líka sem var mjög skemmtilegt. Það var því áskorun að fara hingað. Ég var hins vegar á tímamótum og datt niður á þetta verslunarstjórastarf, sótti um og fékk starfið. Áskoranir af ýmsum toga heilla alltaf, þetta hljómaði sem spennandi starf hjá stóru og rótgrónu fyrirtæki og alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt“.
Íris þekkir vel til aðeins til starfa iðnanarmanna því hún hóf störf hjá Keflavíkurverktökum fyrir tæpum tveimur áratugum og starfaði þar í tíu ár.
(Framhald neðan við mynd)
– Hvernig var svo að koma til BYKO. Var þetta eins og þú áttir von á?
„Nei, ég get ekki sagt það, þetta er miklu skemmtilegra en ég bjóst við. Enn í dag er hver dagur að koma mér á óvart og það skemmtilega á óvart. Það kom mér einnig skemmtilega á óvart hvað BYKO er flott fyirtæki. Það er eitthvað svo notalegt við þetta fyrirtæki sem ég þekkti lítið til, samstaða og samhugur sem kemur fram hjá starfsfólkinu. Hér hefur sama starfsfólkið verið til margra ára, margir í tugi ára. Þegar ég kom fyrst til fyrirtækisins fór ég í meiriháttar starfsþjálfun hjá BYKO bæði í Reykjavík, Selfossi og víðar. Þar var ég í timburdeildunum og lagnadeildunum og fékk í raun kynningu inn á allar deildir fyrirtækisins. Þar var ég að hitta fólk sem hefur starfað hjá BYKO í 30 ár og 40 ár. Það er hending ef það er einhver búinn að starfa hér minna en 15 ár,“ segir Íris og brosir. „Það sagði mér ýmislegt um fyrirtækið. Þetta er fjölskyldufyrirtæki og andrúmloftið notalegt sem skýrir þennan háa starfsaldur hjá fyrirtækinu. Þetta kom mér skemmtilega á óvart“.
Íris sagði tilfinnguna pínu óttablendna að koma svo hingað suður, eftir starfsþjálfun í Reykjavík og taka við versluninni. „Hér er starfsaldurinn líka hár og flestir sem hér starfa búnir að vera meira en í 10 ár hjá fyrirtækinu, en að sjálfsögðu var tekið vel á móti mér af þessu yndislega starfsfólki“.
Hér er gríðarleg reynsla og þekking
„Hér er starfsfólk sem býr að gríðarlegri reynslu og þekkingu. Þjónustulundin og metnaðurinn er einnig svo mikill hjá þessu fólki. Að koma inn í þetta starf með litla og enga þekkingu á vöruflokkunum er áskorun,“ segir Íris en hjá BYKO eru á milli 35-40.000 vöruflokkar. „Ég mun aldrei verða sérfræðingur í þessu öllu en það bætist við þekkinguna á hverjum degi. Starfsfólkið hér er orðið sérfræðingar hver á sínu sviði“.
Hjá BYKO Suðurnesjum starfa um tveir tugir starfsmanna, þar af 15 í föstu starfi og svo kemur lausafólk um helgar og einnig á öðrum tímum en er að vinna allt árið um kring.
„Við erum að sjá aukningu og ég hef því aðeins verið að bæta við starfsfólki“.
Það eru uppgrip á Suðurnesjum
Verslun BYKO í Reykjanesbæ er næst minnsta verslun BYKO á landinu öllu. Hún er fyrst og fremst að þjónusta fagmenn, iðnaðnarmenn og verktaka í byggingariðnaði. „Það hafa verið uppgrip. Það er mikið að gerast í tengslum við flugstöðina, það er allt að lifna við í Helguvík og uppbygging við Bláa lónið er á fullu alveg eins og gagnaverin og uppbygging á Reykjanesi. Pípulagnafyrirtæki, smiðir, stórir verktakar, minni verktakar eru meðal þess sem við erum að þjónusta alla daga. Við erum líka að þjónusta einstaklinga og heimilin. Við stílum inn á alla markhópa, alla flóruna. Hér er líf og fjör alla daga því viðskiptahópurinn er svo blandaður. Það er gaman að sjá að allir verktakarnir eru hlaðnir verkefnum og mikið framundan og svo einstaklingsframtakið sem skiptir miklu máli líka“.
Aðspurð hvort verslunin væri mikið að breytast á milli árstíða, sagði Íris að grófvaran, verkfærin og annað sem snýr að iðnaðnarmanninum heldur sér allt árið meira og minna og er kjarninn í BYKO. Nú er hins vegar verið að pakka niður sumrinu inni í versluninni og setja fram vörur sem tengjast haustinu „Svo styttist í jólin“. Það er vetur, sumar, vor og haust í BYKO og allt sem tengist því, sagði Íris og brosti breytt en það komst einmitt í fréttinar í vor að verslunin hafði auglýst að sumarið væri komið í BYKO á sama tíma og allt var á kafi í snjó víða um land, en það kom snemma í BYKO.
(Framhald neðan við mynd)
Starfsfólkið á gólfinu lætur verslunina ganga
Þó svo Íris beri titil sem verslunarstjóri þá segist hún einnig vera töluvert frammi á gólfi verslunarinnar og taki þátt í daglegum verslunarstörfum, enda vilji hún kynnast þessu vel og vera í tengslum við viðskiptavini BYKO. Hún segist oft vera rekin á gat af viðskiptavinum en þá komi reynslumikið starfsfólk BYKO og aðstoðar við að leysa málin. „Þetta fólk stendur við bakið á mér og er mikill auður fyrir þessa verslun og okkar viðskiptavini,“ segir Íris. „Það er starfsfólkið á gólfinu sem lætur þessa verslun ganga eins og vel smurða vél og fyrir það ber að þakka“.
Eins og fram kemur hér að framan er verslun BYKO í Reykjanesbæ næst minnsta BYKO verslunin á landinu. Hún nýtur hins vegar nálægðar við Reykjavík og ef varan er ekki til að morgni er mögulegt að fá hana senda í verslunina og afgreidda síðdegis eða strax næsta dag. Þannig leggja iðnaðarmenn oft inn pantanir og sækja svo vöruna sama dag eða þann næsta.
Þrátt fyrir að Írisi finnist gaman í vinnunni þá á hún sér áhugamál fyrir utan starfið. Hún er leiðsögumaður að mennt og hefur gaman af útivist og gengur mikið um Reykjanesskagann og notar hvert tækifæri til þess. Hún hefur mikinn áhuga á ferðamannaiðnaði og þjónustu við ferðafólk og það hefur blundað í henni lengi og hún segir frábært að sjá hvernig þjónustua við ferðafólk er að byggjast upp og sem verslunarstjóri í BYKO í Reykjanesbæ þá hittir hún marga sem eru að t.a.m. að byggja og breyta til að taka á móti ferðafólki.
„Það eru spennandi tíma framundan hjá BYKO og hlakka ég til þess að vera þáttakandi í þeim verkefnum með þessu frábæra starfsfólki hér í BYKO á Suðurnesjum. Ég horfi spennt fram á veginn.“
Viðtal og myndir: Hilmar Bragi Bárðarson