Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Tenórinn Rúnar Þór: „Á yndislega konu“
Miðvikudagur 12. apríl 2006 kl. 09:53

Tenórinn Rúnar Þór: „Á yndislega konu“

Rúnar Þór Guðmundsson lauk nýverið þátttöku sinni í óperrettunni Nótt í Feneyjum sem sýnd var í Íslensku Óperunni í Reykjavík. Þar fór Rúnar með hlutverk Caramelo sem var einkaritari aðalpersónunnar í verkinu, Party Hans. Rúnar Þór er Keflvíkingur og starfar sem smiður hjá ÍAV og hefur söngur skipað æ stærri sess í lífi hans síðustu misseri. Uppfærslan á Nótt í Feneyjum var nemendasýning og komu um 60-70 söngvarar í áheyrnarprufur og hlaut Rúanar eitt af fjórum aðalhlutverkunum.

„Ég hóf minn feril í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar en hélt svo til Reykjavíkur og söng hjá Sigurði Demetz í Reykjavík en hann kvaddi nýverið þennan heim,“ sagði Rúnar í samtali við Víkurfréttir. „Nú sæki ég tíma hjá Guðbirni Guðbjörnssyni í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar en hann er einstaklega góður söngkennari og frábært að hafa hann í bæjarfélaginu,“ sagði Rúnar sem ætlar að ljúka 8. stigs prófi, burtfararprófi, frá Tónlistarskólanum í Reykjanesbæ um næstu áramót.

„Söngbakterían er orðin ansi slæm og eftir sýningarnar á Nótt í Feneyjum, sem voru mjög vel sóttar, hefur þetta bara ágerst hjá mér,“ sagði Rúnar sem er vinnandi fjölskyldufaðir. „Ég á yndislega konu sem stendur þétt við bakið á mér og gæti þetta ekki án hennar.“ Rúnar notar hvert tækifæri til þess að æfa sig og segir að vinnufélagarnir hafi bara gaman af því þegar hann sé að góla í nýbyggingunum.

„Ég tók mér frí frá vinnu til þess að taka þátt í Nótt í Feneyjum og sótti því um styrki á meðan þessu stóð. Ég vil koma á framfæri innilegu þakklæti til Glitnis og Hitaveitu Suðurnesja og sérstakar þakkir fær Sparisjóðurinn í Keflavík,“ sagði Rúnar auðmjúkur.

Stefnan er eins og áður greinir sett á burtfararpróf um áramótin en eftir það ætlar Rúnar að meta aðstæðurnar. „Að loknu burtfararprófi fara margir söngnemar í einkatíma hjá nafntoguðum kennurum úti í heimi eða í söngnám við Háskóla,“ sagði Rúnar að lokum. Það gæti því vel farið svo að Suðurnesjamenn myndu á næstu árum eignast enn eina rósina í litríkt hnappagat tónlistarsögunnar.

Myndir: Kristján Maack

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024