Mannlíf

Tendrun jólaljósa og aðventumessa í Vogum
Frá tendrun jólaljósa á jólatré Vogabúa.
Miðvikudagur 26. nóvember 2014 kl. 09:42

Tendrun jólaljósa og aðventumessa í Vogum

Sunnudaginn 30. nóvember verður aðventumessa kl 15:00 í Kálfatjarnarkirkju. Sama dag kl. 17:00 verða jólaljósin tendruð á jólatrénu í Aragerði. Séra Kjartan Jónsson flytur hugvekju og kirkjukórinn mun syngja nokkur lög undir stjórn Franks K. Herlufsens.

Einnig munu nemendur í 1. bekk Stóru-Vogaskóla syngja og heyrst hefur að einhverjir af þeim jólasveinabræðrum muni kíkja við og jafnvel með glaðning í pokahorninu fyrir stillt börn.

Þess má geta að krakkarnir á leikskólanum Suðurvöllum bjuggu til skrautið sem prýðir jólatréð.

Krakkarnir í 10. bekk Stóru-Vogaskóla verða með heitt súkkulaði og annað góðgæti til sölu til styrktar lokaferðar þeirra.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024