Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Mannlíf

Tendra jólaljósin á jólatrénu í Reykjanesbæ kl. 17
Laugardagur 3. desember 2011 kl. 15:08

Tendra jólaljósin á jólatrénu í Reykjanesbæ kl. 17

Ljósin verða tendruð á vinabæjarjólatrénu frá Kristiansand í Noregi á Tjarnargötutorgi í Reykjanesbæ í dag,  laugardaginn 3. desember, kl. 17.00. Ritari norska sendiráðsins, Silje Arnekleiv, afhendir jólatréð og Catarina Chainho da Costa nemandi úr Myllubakkaskóla mun tendra ljósin.

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Dagskrá:
Blásarasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Barnakór Holtaskóla syngur. Magnea Guðmundsdóttir varaforseti bæjarstjórnar mun ávarpa samkomuna og viðurkenningar frá Skessudögum í lok október. Jólasveinar koma í heimsókn og bregða á leik með börnunum og boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur.