Tannlæknar gáfu leikskóla hund
Góðir gestir komu í heimsókn á Garðasel á lokadegi tannverndarvikunnar, sem haldin er árlega á þessum tíma. Kristín Geirmundsdóttir og Kristin Erla Ólafsdóttir tannlæknar ásamt aðstoðarkonum mættu á Garðasel færandi hendi.
Þær gáfu okkur hundinn Daisy sem hugsar alltaf vel um tennurnar sínar. Þeim var svo boðið að horfa á leikritið Karíus og Baktus í flutningi starfsfólks Garðasels.
Góður endir á vel heppnaðri tannverndarviku hjá Heilsuleikskólanum Garðaseli, segir í tilkynningu frá heilsuleikskólanum.