Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Mannlíf

Taktu þér frí frá jólastressinu og hlustaðu á fagra tóna
Miðvikudagur 15. desember 2010 kl. 09:23

Taktu þér frí frá jólastressinu og hlustaðu á fagra tóna

Nú er tækifæri til að gleðjast því hin stórgóða hljómsveit Valdimar og unaðsbarkinn Kalli sameinast í gleði þar sem próflokum og jólafríi verður fagnað með tónleikum í Frumleikhúsinu í Keflavík.

Hljómsveitin Valdimar er nýtt afl í íslensku tónlistarsenunni. Tónlist sveitarinnar spannar allan tilfinningaskalann og eru blásturshljóðfæri áberandi í lögum hennar. Sveitin gaf ný...lega út frumraun sína Undraland, sem hlotið hefur frábærar viðtökur. Titillag plötunnar, Undraland, nýtur vinsælda á öldum ljósvakans og situr nú í 3. sæti vinsældarlista Rásar 2. Kraftmikil orka og útgeislun einkenna tónleika sveitarinnar.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Kalli er nýbúinn að gefa út sína aðra sólóplötu, sem fengið hefur frábæra dóma. Tónlistin er innileg og melódísk. Hljómur Nashville er áberandi á plötunni, enda naut Kalli aðstoðar sögufrægra hljóðfæraleikara við gerð plötunnar þar í borg.

Húsið opnar kl. 20:30
Miðaverð er 1000 kr
2 fyrir 1 fyrir NFS-ara.
Plötur á sértilboði!

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25