Tælensk hátíð í Samkomuhúsinu í Sandgerði
Sunnudaginn 22. júlí verður Samfelld tælensk arfleifð 2012 haldin í Samkomuhúsinu í Sandgerði kl. 18.00-21.00
Danssýning frá Kasestart háskólanum í Tælandi. Þau munu sýna Hanumal, Manora og hefðbundinn tælenskan dans. Að auki verður flutt skemmtileg og áhugaverð tónlist með tælenskum hljóðfærum. Glæsileg danssýning sem dansunnendur ættu ekki að láta framhjá sér fara. Khon er danstegund frá Tælandi sem var eingöngu sýndur við konungshirðina og fluttur af grímuklæddum karlmönnum, sögumanni og við undirspil tælenskrar tónlistar.
Matur að hætti Tælendinga, kaffi og kökur. Innifalið er matur og kaffi, dans og skemmtiatriði.
Allir velkomnir. Miðaverð aðeins 3.000 kr.
- Mannlíf | 24. maí 2013 07:21Litskrúðugir landnámshænuungar senn til sýnis
- Mannlíf | 23. maí 2013 18:00Traktors- og fornbílasýning í Reykjanesbæ
- Mannlíf | 23. maí 2013 17:26Afhentu BUGL 640 þúsund krónur
- Mannlíf | 23. maí 2013 15:53Skipulagðar gönguferðir um Reykjanes 6. árið í röð
- Mannlíf | 23. maí 2013 14:57Móði og Magni fæddir í Landnámsdýragarðinum
- Mannlíf | 23. maí 2013 10:59Dagskrá Sjóarans síkáta 2013 tilbúin


