Sýnir bindi og ljóð á 20 ára starfsafmæli
Stefán Bjarkason framkvæmdastjóri menningar-, íþrótta- og tómstundasviðs Reykjanesbæjar fagnaði í dag 20 ára starfsafmæli hjá Reykjanesbæ.
Stefán hóf störf hjá Njarðvíkurbæ 1. mars árið 1987 en það var fyrir sameiningu bæjarfélaganna Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna árið 1994. Sem íþrótta- og tómstundafulltrúi í Njarðvík var hann jafnframt forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Njarðvíkur en forstöðumaður hennar í dag er Hafsteinn Ingibergsson. Við sameininguna tók Stefán við starfi íþrótta- og tómstundafulltrúa Reykjanesbæjar en árið 2006 tók Ragnar Örn Pétursson formlega við því embætti. Menningarmálin bættust við framkvæmdasvið Stefáns árið 2003 en menningarfulltrúi er Valgerður Guðmundsdóttir.
Stefán hefur átt sæti í stjórn FÍÆT sem er félag íþrótta- og æskulýðs- og tómstundafulltrúa og æskulýðsráði ríkisins.
Í tilefni af starfsafmælinu var boðið til sýningar á bindasafni Stefáns en þau telja nokkuð á annað hundraðið og Stefán sýndi brot af vísum og ljóðum sem orðið hafa til vegna starfsins. Starfsfélagar Stefáns afhentu honum að gjöf gult reiðhjól sem er tilvísun í verkefni sem hleypt var af stokkunum í Reykjanesbæ fyrir nokkrum árum.
Við birtum hér eitt kvæðið í tilefni dagsins sem ort var á aðalfundi FÍÆT árið 1988.
Eg var að hugsa um það á leiðinni heim
hve fallega stund við áttum
Hve gaman það er að gleðjast með þeim
sem gefast að mannlegum þáttum
Texti: Reykjanesbær.is, VF-mynd/Þorgils: Stefán með hjólið góða, bindasafnið í baksýn.