Sýningu Þuríðar í Suðsuðvestur lýkur um helgina

Með því að höfða til löngunarinnar til að klappa mjúkum dýrum verða málverkin nánast ómótstæðileg og um leið koma fram spurningar um málverkið sem miðil. Þaulunnin og tímafrek kallast þau á við listasöguna og vega salt milli hins fígúratífa og abstrakt.
Um leið og Þura vinnur með upplifun áhorfenda í sýningarrýminu skoðar hún líka eigin upplifun úti í náttúrunni í hestamennsku.
Hún reynir ekki að endurgera reiðtúr heldur, líkt og í málverkunum, einangrar takmarkaðan hluta þeirrar upplifunar og þaulskoðar í formi myndbands.
Suðsuðvestur er á Hafnargötu 22 í Reykjanesbæ. Opnunartími; föstudaga frá kl. 16. - 18.
Laugardaga og sunnudaga frá kl.14. – 17.30.