Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Sýningin Tilvist opnar í Listasafni Reykjanesbæjar
Fimmtudagur 22. mars 2012 kl. 09:47

Sýningin Tilvist opnar í Listasafni Reykjanesbæjar

Laugardaginn 24. mars verður opnuð sýning á nýjum olíumálverkum og vatnslitamyndum eftir Jón Axel Björnsson í Listasafni Reykjanesbæjar. Sýningin, sem ber heitið Tilvist, er fyrsta stóra sýningin á verkum listamannsins í rúman áratug.

Jón Axel var meðal nokkurra listamanna sem komu fram undir merkjum „nýja málverksins“ snemma á níunda áratugnum, en skar sig snemma úr þeim hópi fyrir sjálfstæð vinnubrögð, ekki síst frásagnarlegan stíl sem snerist framar öðru um margháttaðan mannlegan vanda í lítt skiljanlegum heimi.

Í framhaldinu hefur myndlist Jóns Axels tekið ýmsum listrænum breytingum, orðið einfaldari og grafískari í formi, síðan nokkuð höll undir þrívíddarlist, jafnvel innsetningarformið. Nýjustu málverk hans eru opin og lífræn að formi og margræð að merkingu, en frásögnin í þeim snýst sem fyrr um leitina að einhvers konar haldreipi í hringiðu lífsbaráttunnar.

Jón Axel hefur haldið 21 einkasýningu og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Verk hans er að finna í öllum helstu listasöfnum landsins og í nokkrum erlendum söfnum að auki. Hann hefur einnig myndlýst bækur og tímarit, þ.á.m. Ritsafn Snorra Sturlusonar ásamt öðrum, og hannað sviðsmyndir fyrir íslensk leikhús.

Sýningin í Listasafni Reykjanesbæjar verður opnuð kl. 16.00 laugardaginn 24. mars n.k. og stendur til 6. maí. Henni fylgir vönduð sýningarskrá með fjölda ljósmynda og texta um listamanninn eftir Aðalstein Ingólfsson, listfræðing.

Safnið er opið virka daga kl. 12.00-17.00, helgar kl. 13.00-17.00.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024