Bygg
Bygg

Mannlíf

Sunnudagur 28. apríl 2002 kl. 16:11

Sýningin Annie fær frábærar viðtökur

Söngva- og danssýningin Annie sem sýnd er í Frumleikhúsinu hefur fengið frábæara viðtökur síðan hún var frumsýnd á föstudag. Uppselt hefur verið á þær þrjár sýningar sem sýndar hafa verið og hefur þurft að vísa fólki frá í einhverjum tilvikum.Sýningin byggist upp á sögu munaðarleysingjans Annie og eru leikendur 55 stúlkur á aldrinum 6-15 ára. Annie er afmælisverk Jazzdansskóla Emilíu sem heldur upp á 10 ára afmæli sitt þessa daganna. Leikstjóri sýningarinnar er Jón Marinó Sigurðsson en næsta sýning verður 1. maí. Í tilefni af sýningunni færðu Ellert Eiríksson, bæjarstjóri og dóttir hans Guðbjörg Ósk Ellertsdóttir öllum leikendum eina rauða rós í tilefni dagsins.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á sýningunni í dag.
Bílakjarninn
Bílakjarninn