Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Sýning í Listasafni Reykjanesbæjar
Þriðjudagur 18. janúar 2005 kl. 11:43

Sýning í Listasafni Reykjanesbæjar

Laugardaginn 22. janúar kl.17:00 verður opnuð í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum sýning á málverkum Kristínar Gunnlaugsdóttur og ber sýningin heitið …mátturinn og dýrðin, að eilífu…. Flest verkanna eru unnin á árunum 2001-2004 og hafa aldrei verið sýnd áður. 

Kristín útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og fór þá beint í framhaldsnám til Ítalíu.  Þar lærði hún m.a. íkonagerð í Róm og stundaði nám í Ríkisakademíunni í Flórens árin 1988-1993.   Kristín hefur síðustu 15 árin tekið þátt í mörgum sýningum, hér heima og erlendis og er þetta10. einkasýning hennar.  Kristín hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar og hlotið nokkrum sinnum listamannalaun frá Menntamálaráðuneytinu, síðast árið 2002-3.  Verk hennar eru í eigu fjölda opinberra safna, kirkna, fyrirtækja og einstaklinga.
 
Í nýrri sýningarskrá segir Auður Ólafsdóttir listfræðingur m.a. um listamanninn.  “ Í þeim persónulega reiti sem Kristín hefur helgað sér í listasögunni hefur stundum verið að finna sérkennilegar mannverur sem hver guðdómur og hver eilífð myndi vera fullsæmd af: fagureyga, toginleita öldunga með hárskúfa og í skóm með uppbrettri tá, standa þar tveir og tveir gegnt hvor öðrum, mitt í ómældu af bláu. Líkt og einsemd mannsins sem hefur þörf fyrir speglun eða samveru.” Og síðar í sama texta má finna: “ Í nýrri verkum Kristínar hafa öldungarnir ójarðnesku vikið fyrir rótföstum voldugum trjám, með trausta, samfléttaða boli. Tré finnast líka í eldri verkum Kristínar, en þau eru af öðrum toga, eru mjó og spíruleg, andleg tré. Nýju trén eru hins vegar gömul tré, með rætur djúpt í jörðu, krónan teygir sig hins vegar ekkert sérstaklega hátt til himins.”

Sýningin er opin alla daga frá  kl. 13.00 – 17.30 og stendur til 6. mars.

Í tilefni 90 ára vígsluafmælis Keflavíkurkirkju eru 4 verk eftir Kristínu sýnd í safnaðarheimili kirkjunnar, Kirkjulundi og verður sá hluti sýningarinnar opnaður kl. 16.00 þennan sama dag.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024