Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Syngur til Íslands
Mánudagur 26. nóvember 2012 kl. 04:24

Syngur til Íslands

Söngvakeppni Sjónvarpsins hefst í janúar á næsta ári og í vor kemur í ljós hver verður fulltrúi Íslands í Malmö í Svíþjóð þegar lokakeppni Eurovision fer fram þar í landi.

Alls bárust 240 lög í keppnina að þessu sinni, sem var metfjöldi. Valnefnd hefur nú valið tólf lög úr innsendum lögum og meðal þeirra sem eiga lag í keppninni í ár er Keflvíkingurinn Elíza Newman. „Ég hef aldrei sent inn lag eða komið nálægt Eurovision áður. Ég hef verið beðin um að syngja áður en það hentaði ekki á þeim tíma,“ segir tónlistarkonan Elíza Newman sem var að senda frá sér nýja plötu á dögunum sem kallast Heimþrá. Hún segir að hún hafi átt hressilegt popplag á lager en það hafi ekki hentað plötunni hennar sérstaklega. „Þetta er svona poppslagari sem ég samdi með Gísla Kristjánssyni og Ken Rose í London.Við vissum ekki alveg hvað við áttum að gera við það fyrr en Eurovision kom inn í myndina og þá vorum við sannfærð um að það myndi passa rosa vel í það.“ Elíza segir að það sé ekki komið á hreint hver syngi lagið í undankeppninni en hún sagði í gamni að það væri algert hernaðarleyndarmál! „Það verður kannski einhver yngri útgáfa af mér,“ sagði Elíza og hló.

Lagið heitir Ég syng! en upprunalega sömdu Elíza og Gísli Kristjánsson enskan texta við lagið. Hún fékk svo Huldu systur sína, sem ætti að vera Suðurnesjamönnum kunn úr Útsvarsliði Reykjanesbæjar, til þess að snara textanum yfir á okkar ástkæra ylhýra móðurmál. „Hún er svo góð í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur og þetta tókst svona fjári vel,“ segir Elíza.
Á dögunum var Elíza stödd á Íslandi en hún hefur verið búsett í London undanfarinn áratug eða svo. Hún var ásamt fjöldanum öllum af listamönnum að troða upp á tónlistarhátíðinni vinsælu Airwaves og hafði að sögn gaman af. Nýja hljómplata Elízu, Heimþrá, sem kom út fyrir skömmu er algerlega sungin á íslensku en stefnan er þó sett á að gera enska útgáfu að ári liðnu. Eins og nafn plötunnar gefur til kynna þá örlar stundum fyrir heimþrá hjá Elízu en hún segist alltaf vera á leiðinni heim. „Maður þarf bara að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera og þá er aldrei að vita,“ en í London kennir Elíza börnum tónlist í einkaskóla auk þess sem hún vinnur í sinni eigin tónlist. Elíza semur öll lög plötunnar en Gísli Kristjánsson hjálpar aðeins til við textagerð ásamt því að vera upptökustjóri á  plötunni.

Heimþrá var plata vikunnar hjá Rás2 í síðustu viku og hlaut frábæra umsögn hjá plötugagnrýnanda Rásar 2 sem gaf henni 8,8 af 10 og lýsti henni sem hlýrri og skemmtilegri plötu. Elíza segir að sala hennar fari ágætlega af stað. Geimsteinn gefur plötuna út og Elíza heldur sig því við heimaslóðirnar. Nú þegar hafa tvö lög af plötunni náð nokkrum vinsældum á Íslandi en það eru lögin Hver vill ást? og Stjörnuryk og vonar Elíza að það sé það sem koma skal. Hljómurinn á plötunni er að sögn Elízu hlýlegur og einlægur. Hún er á því að platan sé alveg sérstaklega íslensk. „Ég er í raun að syngja til Íslands og þá er gott að sjá hlutina svona utan frá. Fjarlægðin gerir fjöllin blá, eins og sagt er,“ segir Elíza að lokum.
Elíza spilar á útgáfutónleikum Geimsteins á Ránni í Keflavík fimmtudaginn 6. desember og á Faktorý í Reykjavík 7.desember.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024