Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Syngur fjölbreytt verk á tónleikum í Salnum
Mánudagur 5. nóvember 2007 kl. 17:12

Syngur fjölbreytt verk á tónleikum í Salnum

Óperusöngkonan Bylgja Dís Gunnarsdóttir frá Reykjanesbæ mun halda sínu fystu tónleika hér á landi í Salnum í Kópavogi  annað kvöld, þriðjudag, og opnar húsið kl. 20.


Bylgja Dís lauk mastersnámi í söng og tónlist við háskóla í Glasgow en starfaði eftir það með óperuhópnum Clonter Opera við góðan orðstír. Auk þess kom hún fram með British Youth Opera og Royal Scotish National Orchestra.

Hún býr nú og starfar við tónlistarkennslu á Suðurnesjum, en hún hóf einmitt tónlistarnám sitt í Tónlistarskóla Njarðvíkur á sínum tíma.

 

„Meðal þess sem er framundan hjá mér er að ég mun syngja hlutverk Floru í la Traviata hjá íslensku óperunni eftir áramót, sem er afar spennandi verkefni,“ segir Bylgja í samtali við Víkurfréttir. „Eftir það verð ég eiginlega með annan fótinn í útlöndum þar sem ég verða að syngja víða. Það er mikil samkeppni á markaðnum erlendis, sérstaklega fyrir sópran, en það er þess virði því mér finnst óskaplega gaman að syngja fyrir fólk, hreyfa við því og koma boðskap til skila með söng.“

Á tónleikunum í Salnum verður fjölbreytt dagskrá þar sem Bylgja syngur m.a. verk eftir Mozart, Sibelius, Strauss og fleiri við undirleik Juliu Lynch píanóleikara frá Skotlandi. Húsið opnar kl. 20 og eru allir velkomnir.

Mynd: Við athöfn þar sem Bylgju voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í Drum Castel, Aberdeen í Skotlandi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024