Bygg
Bygg

Mannlíf

Syngja skemmtilega óviðeigandi jólalög
Miðvikudagur 21. desember 2022 kl. 11:13

Syngja skemmtilega óviðeigandi jólalög

Dónalegi sönghópurinn Jólabjöllurnar

Mikið er um að vera hjá dónalega sönghópnum Jólabjöllurnar þessa dagana. Sönghópurinn samanstendur af sjö hressum konum sem koma fram og syngja jólalög á hinum ýmsu viðburðum. Hópurinn hefur ákveðna sérstöðu þar sem lög á borð við Hátíðarsköp, Þvagleki um jólin og Jólaswingið eru iðulega sungin af hópnum.

„Þetta allt byrjaði þannig að hópurinn söng bara þessi hefðbundnu, klassísku jólalög sem við þekkjum öll og svo fór hópurinn að gera eitt og eitt lítið grín hér og þar í lögunum og núna erum við komnar með þetta á eitthvað allt annað „level“. Í dag er vinsælast að fá okkur í svona „dóna­prógram“, við erum aðallega í því en tökum hitt að sjálfsögðu líka að okkur með glöðu geði,“ segir Jóhanna María Kristinsdóttir, ein af Jólabjöllunum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Jóhanna er með Bachelor-gráðu í tónlist frá Listaháskóla Íslands og kennir í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Jóhanna er eini meðlimur sönghópsins sem kemur frá Reykjanesbæ, aðspurð hvernig hópurinn varð til segir hún: „Þær voru búnar að vera starfandi í sex ár áður en ég kom inn í hópinn. Þær voru saman í kór og þeim fannst ekki vera nógu mikið sungið af jólalögum, þær ákváðu því að stofna „hliðarkór“ eða litla söngsveit til að syngja fleiri jólalög saman. Árið 2019 fór ég á námskeið hjá Improv Ísland og kynntist Jónu, einni af stofnendum hópsins, þar berst til tals að ég sé söngkona. Einhverjum mánuðum eftir að námskeiðinu lauk  hefur hún samband við mig og biður mig um að syngja með þeim. Ég var til í það, mætti heim til hennar í smá brunch með hópnum og við sungum saman. Ég hef ekki losnað við þær og þær ekki við mig síðan.“

Jóhanna María Kristinsdóttir

Hvaðan kemur nafnið Jólabjöllurnar?

„Góð spurning, ég þekki það ekki almennilega en við grínumst reglulega með að okkur finnist þetta hræðilegt nafn. Á sama tíma og við gerum mikið grín af því, þykir okkur mjög vænt um það en svo eigum við gælunafn eða hálfgert „alter ego“ sem heitir ekki Jólabjöllurnar heldur „Drjólapjöllurnar“ sem við notum þegar við erum með grínprógramið okkar,“ segir Jóhanna og hlær.

Hvað eruð þið sem hópur að gera þessa dagana?

„Við byrjum að undirbúa okkur fyrir jólatíðina í ágúst, svo við erum búnar að vera í stífum æfingum síðustu mánuði. Við vorum með tónleika 1. desember á Gauknum, þar tókum við bara dónalög og fullt af nýjum lögum, við vorum líka í Aðventugarðinum í Reykjanesbæ annan í aðventu. Það sem við erum aðallega að gera þessa dagana er að syngja á jólahlaðborðum og litlum samkomum á vinnustöðum. Við höfum samt fengið alls konar verkefni, við höfum mörgum sinnum sungið í miðbæ Reykjavíkur í kringum jólin. Þá erum við að rölta um miðbæinn og koma við hér og þar og tökum nokkur lög.“

Hvernig grín gerið þið í lögunum?

„Við tölum oft um að við séum að sérhæfa okkur í því að taka öll fallegu og hugljúfu jólalögin sem Íslendingar elska og eyðileggja þau. Undirstaðan er sú að okkur finnst rosalega gaman að gera grín og dansa svolítið á línunni og vera tvíræðar í því sem við erum að syngja. Þó svo að umfjöllunarefnið sé klúrt, segjum við upp til hópa ekki mikið af einhverjum dónalegum orðum eða grófu gríni. Okkur finnst gaman að vera með létt grín og vera skemmtilega óviðeigandi. Það er kannski rétt að taka það fram að við erum að taka fullt af lögum þar sem grínið er ekki klúrt á nokkurn hátt.“

Hópurinn syngur þó ekki aðeins jólalög í dónalegum búningi heldur líka þessi hefðbundnu sem við könnumst flest við. En eiga þær það aldrei til að syngja gríntextana þegar þær koma fram sem Jólabjöllurnar en ekki Drjólapjöllurnar?

„Mörg af lögunum sem eru með dónatexta eru upprunalega einhver lög sem við syngjum líka. Við eigum þá alveg ótrúlega erfitt með að ruglast ekki, sérstaklega í lagi sem heitir Hátíðarsköp, sem er í raun lagið Hátíðarskap í nýjum búningi. „Ég kemst í hátíðarskap“ verður þá að „ég er með hátíðarsköp“. Við eigum alveg á hættunni að ruglast og það hefur alveg gerst en það er þá yfirleitt bara ein okkar sem ruglast en það heyrist oftast ekki þar sem hinar syngja réttan texta.“

Hvert er uppáhaldsjólalagið þitt og hvert er uppáhaldsgrínlagið þitt af þeim sem þið syngið?

„Uppáhalds fallega jólalagið sem við syngjum er I’ll be home for Christmas, það er mjög erfitt að velja uppáhaldsdónalagið því það eru svo mikið af nýjum lögum sem við erum að taka í ár og þau eru svo ótrúlega skemmtileg. Ég hugsa að það sé lag sem við erum ósammála um hvað heitir en við köllum það yfirleitt Guttorm. Mér finnst það mjög skemmtilegt lag en það fjallar um að árið 2013 var umfjöllun í fjölmiðlum um að starfsfólkið í Húsdýragarðinum borðaði dýrin sem var slátrað á jólahlaðborði eða eitthvað svoleiðis og það er í raun megin inntakið í þessu lagi. Ég held að það lag sé í uppáhaldi eins og er, en það er fljótt að breytast.“

Hvernig verða jólin í ár hjá þér persónulega?

Ég er rosalega mikið fyrir hefðir svona í kringum hátíðir, þá sérstaklega jólahefðir. Ég vil bara hafa hlutina eins og þeir eru og hafa alltaf verið. Jólin fyrir mér snúast fyrst og fremst um að vera með fjölskyldunni minni. Á Aðfangadag er alltaf möndlugrautur í hádeginu og svo förum við í messu klukkan sex og komum svo heim, pabbi sér yfirleitt um matinn þar sem hann er lærður kokkur - sem er algjör lúxus. Það er aldrei neitt sparað í þessa máltíð en undanfarin ár hefur alltaf verið humar í forrétt, andabringur í aðalrétt og Toblerone ís í eftirrétt. Mamma og pabbi eru búin að vera að berjast núna í þónokkur ár að breyta því en okkur, mér og litlu frænku minni, þykir það mjög erfitt. Við erum svolítið vanafastar og viljum hafa hlutina eins og þeir hafa alltaf verið. Í ár fengu þau leyfi til að breyta þessu en við þurftum að funda um þetta og það var samþykkt að aðalrétturinn yrði lambahryggur, gegn því að við myndum fá andabringur við eitthvað annað tilefni. Við þurfum ennþá að fá andabringurnar okkar en þær þurfa ekki að vera þarna akkúrat á aðfangadag, það var niðurstaðan eftir stífar samningaviðræður. Annars ætla ég að syngja með Jólabjöllunum og reyna að vera sem mest með fjölskyldunni og hafa það kósý.“