Sýna verk Áka Gränz og Oddgeirs Karlssonar
Sýning á verkum tveggja Njarðvíkinga stendur nú yfir í Stofunni í Duus Safnahúsum. Verkin eru eftir þá Áka Gränz heitinn og Oddgeir Karlsson ljósmyndara sem báðir unnu og unna íslenskri náttúru.
Sýningin í Duus samanstendur af 15 ljósmyndum Oddgeirs sem teknar eru víða á Reykjanesinu og grjóti úr safni Áka, sem var ástríðufullur steinasafnari.
Við fráfall Áka eignaðist Reykjanesbær mikið steinasafn ásamt fjölda listaverka og á sýningunni núna má sjá úrval úr steinasafninu en listaverkin bíða betri tíma. Sýningin mun standa í sumar.
Nánari upplýsingar um sýninguna má nálgast á vef Reykjanesbæjar.