Svona var lífið í Keflavík 1975
Gömul mynd af Dorró eða Þórðarsjoppu við Hafnargötu í Keflavík fer nú sem eldur í sinu um samfélagsvefinn Facebook. Í ummælum við myndina má greina fortíðarþrá og margar góðar minningar frá gömlum tímum eru rifjaðar upp. Myndin af Þórðarsjoppu birtist í samfélagi sem heitir „Keflavík og Keflvíkingar“ en þar eru í dag á áttunda hundrað myndir frá ýmsum tímum í Keflavík.
Það var Árni Árnason sem tók myndina af Þórðarsjoppu á miðjum áttunda áratug síðustu aldar. Búið er að nafngreina alla á myndinni nema konuna sem stendur í útihurðinni.
Lengst til hægri sitjandi undir glugganum er Ásta Grétarsdóttir. Við hlið hennar situr Ólafía Ólafsdóttir. Þá situr Ólafía Þórey Sigurðardóttir við hlið hennar og hjá henni stendur yngsta systir hennar, Pálína Hildur Sigurðardóttir. Í vagninum er svo Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, sonur Ólafíu Þóreyjar og Hallgríms Guðmundssonar. Guðmundur Rúnar er fæddur 30. júlí 1975.
Sigurlaug Guðmundsdóttir skrifar á Facebook að sjoppan hafi verið aðal unglingastaðurinn í Keflavík frá 1960 til 1970 og jafnvel lengur. „Þetta hús er núna sumarbústaður vestur í Dölum, sem við nokkrir afkomendur Þórðar eiga“. Hún segir sennilegt að sjoppan hafi heitið Þristurinn þegar þessi mynd var tekin því það voru aldrei gardínur fyrir gluggunum í tíð Þórðar. Ólafía Þórey Sigurðardóttir staðfestir að þarna hafi sjoppan heitið Þristurinn sem systurnar Eva og Stefanía ráku saman ásamt Guðrúnu vinkonu þeirra.
Þórðarsjoppa, Dorró eða Þristurinn...
... og svona er húsið í dag, notað sem sumarhús vestur í Dölum.
Gamlar myndir í Víkurfréttir
Margar áhugaverðar myndir hafa verið að birtast síðustu daga í samfélaginu „Keflavík og Keflvíkingar“ á Facebook. Víkurfréttir hafa áhuga á að birta nokkrar af þessum myndum með góðfúslegu leyfi ljósmyndaranna. Þá hefur blaðið áhuga á að fá gamlar myndir frá Suðurnesjum frá lesendum blaðsins þar sem rifjað er upp hvað er að gerast á myndinni eða sagðar sögur frá þeim tíma sem myndin er tekin. Myndir og frásagnir má senda á Hilmar Braga fréttastjóra Víkurfrétta á póstfangið [email protected].