Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Sveitamarkaður Hlöðunnar í Vogum á laugardag
Mánudagur 6. september 2010 kl. 14:26

Sveitamarkaður Hlöðunnar í Vogum á laugardag

Sveitamarkaður Hlöðunnar í Vogum á Vatnsleysuströnd verður haldinn í fyrsta sinn laugardaginn 11. september frá kl. 12:00-16:00.


Laugardaginn 11. september bjóða íbúar Voga og Vatnsleysustrandar grönnum sínum að njóta haustuppskerunnar með sér.
Meðal þess sem verður á boðstólum er ýmislegt matarkyns svo sem sultur, chutney, heimagert marmelaði, krydd og nýuppteknar kartöflur. Einnig verða til sölu húfur, treflar, pelapeysur ásamt öðru handverki.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Á markaðnum verður keppt um bragðbestu sultuna og skrýtnustu kartöfluna og eru gestir hvattir til þess að skrá sig í keppnina á netfangið [email protected]

Svokallað „skiptiborð“ verður á markaðnum þar sem hægt verður að skiptast á varningi, grænmeti, sultutaui, handverki og lopasokkum.


Boðið verður upp á kaffi og heitt súkkulaði á sanngjörnu verði.

Landnámsgeitur- og hænur koma í heimsókn og nikkur verða þandar.

Markaðurinn er haldinn í hlöðu sem stendur við bæinn Minni-Voga, Egilsgötu 8 í Vogum og hefst hann stundvíslega kl. 12:00 laugardaginn 11. september.

Allar nánari upplýsingar má nálgast á vef Hlöðunnar http://hladan.org/