Sveitaballastemmningin endurvakin
Helgi Einar Harðarson rekur Kaffi Grindavík
Verða Grindvíkingar fyrstir til þess að endurvekja sveitaballarómantíkina sem einkenndi staði á borð við Njálsbúð eða Hreðavatnsskála? Helgi Einar Harðarson rekur Kaffi Grindavík skammt utan við Grindavíkurbæ en veitingahúsarekstur var ekki á prjónunum þegar Helgi lagði af stað í þau fjölmörgu verkefni sem hann tekst nú á við.
„Mig vantaði móttöku fyrir hestamenn því ég rek hestaleiguna Arctichestar.is og keypti því gömlu móttöku Bláa Lónsins sem er um 90m2 að stærð og móttakan endaði sem veitingastaður,“ sagði Helgi í samtali við Víkurfréttir. Þegar gamla móttakan hafði verið flutt í hesthúsahverfið í Grindavík var tekið við að smíða pall utan um húsið og þegar tjald verður komið á pallinn verður hægt að rúma um 300 manns á Kaffi Grindavík.
Áherslan á fiskrétti
„Við leggjum áherslu á fiskrétti á Kaffi Grindavík enda stutt í ferskan línufisk en það verður einnig hægt að fá hamborgara og fleira hérna,“ sagði Helgi en eins og sakir standa rúmar veitingastaðurinn 48 manns í sæti. Helgi hefur gengist í ýmis störf sem honum eru framandi í veitingarekstrinum sem hafa lagst misvel í hann. „Það hentar mér betur að eltast við hesta en að bera fram mat svo ég læt strákana um það,“ sagði Helgi í léttum rómi en þeir Jóhann Einarsson og Björn Andrésson starfa hjá Helga á Kaffi Grindavík og til stendur á næstunni að þeir komi inn í reksturinn sem meðeigendur.Stálu Stanley
Opnunarkvöld Kaffi Grindavíkur var vel sótt, þegar ljóst var að Helgi myndi fara í veitingarekstur keypti hann innbúið frá barnum Búðakletti í Borgarnesi þar sem hann kynntist nýjum félaga. Stanley var innanstokksmunur í Borgarnesi sem fylgdi Helga til Grindavíkur. „Stanley sat hérna á pallinum allan tímann þegar verið var að smíða pallinn og aldrei svo mikið sem hreyft við hamri. Á opnunarkvöldinu var svaka sprenging hjá okkur og tvisvar sinnum þurfti ég að sækja hann út í bíl hjá einhverju fólki en hann hvarf áður en nóttin var úti,“ sagði Helgi en lögreglan í Keflavík kom höndum yfir Stanley í Reykjanesbæ. Fingralangir einstaklingar höfðu haft fyrir því að bjóða Stanley með sér út á lífið. „Ég var ekki sáttur við viðbrögð lögreglunnar, þeir stungu honum í steininn og létu hann sofa úr sér og svo þurfti ég að leysa hann út gegn tryggingu,“ sagði Helgi um leið og hann skellti upp úr. „Nú fær Stanley gaur í rassinn og verður festur niður á Kaffi Grindavík,“ sagði Helgi og vildi meina að þessi útskorni félagi sinn væri happagripur í rekstrinum. Grínlaust kann Helgi lögreglunni í Keflavík bestu þakkir fyrir að hafa bjargað Stanley en brúðan er sú vinsælasta sinnar tegundar í Grindavík.
Helstu viðburðir á skjánum
Kaffi Grindavík sýndi á breiðtjaldi alla leikina á HM og stefna að því að vera með enska boltann í vetur. Helgi ætlar einnig að fylgja Magna eftir í Rock Star Supernova og vonast til þess að sem flestir komi og eigi góða stund á Kaffi Grindavík á meðan Ísland eignast enn eina stjörnuna.
Ryðja sér til rúms
Helgi og félagar stefna fastlega að því að gera Kaffi Grindavík að stóru sveitaballsnafni á Íslandi. „Okkur fannst það frekar súrt að staðir á borð við Njálsbúð og Hreðavatnsskála skyldu lognast út af og því erum við að ryðja okkur til rúms á sveitaballamarkaðnum,“ sagði Helgi og lofaði því að stemmningin á Kaffi Grindavík yrði góð og þá sér í lagi þegar heilsárstjaldið yrði komið fyrir á pallinum.
Kaffi Grindavík hefur upp á margt að bjóða, útsýni yfir Grindavíkurhöfn með hesthúsin í næsta nágrenni. Þá býður staðurinn einnig upp á 15 manna bíl til þess að fara í skoðunarferðir um Reykjanes eða hreinlega sækja fólk á sveitaball. Innan tíðar verður tjaldið komið upp og þá ætla þeir félagar að drífa sig í því að bóka stórband á sveitaball en það verður spennandi að sjá hvaða íslenska ofurgrúppa verður fyrst til þess að leika á sveitaballi í Kaffi Grindavík.
Texti og myndir/ [email protected]