Sveifla á Hljómum í Keflavíkurkirkju
Hljómsveitin Hljómar frá Keflavík lék fyrir fullu húsi í Keflavíkurkirkju í gærkvöldi á fyrsta sunnudegi í jólaföstu. Hljómar léku og sungu bæði einir sér og með kór Keflavíkurkirkju. Áður hafði Barnakór Keflavíkurkirkju einnig sungið nokkur lög. Hljómarnir fengu góðar undirtektir en þeir sungu og spiluðu lög úr 40 ára sögu sveitarinnar, auk jólalaga. Meðfylgjandi mynd var tekin í gærkvöldi. Hljómar munu leika aftur í Keflavíkurkirkju næsta sunnudag, 7. desember, kl. 20:30 Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Jólasveiflunni verður endurvarpað yfir í Kirkjulund fyrir þá sem ekki fá sæti í sjálfri kirkjunni.
VF-ljósmynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Frá tónleikum Hljóma í Keflavíkurkirkju í gærkvöldi.
VF-ljósmynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Frá tónleikum Hljóma í Keflavíkurkirkju í gærkvöldi.