Sungu í gær og aftur á morgun
Kvennakór Suðurnesja heldur tvenna jólatónleika þetta árið. Fyrri tónleikarnir fóru fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju í gærkvöldi en hinir síðari verða í Listasal Duushúsa annað kvöld, miðvikudagskvöldið 7. desember og hefjast kl. 20. Meðfylgjandi mynd var tekin á tónleikunum í Ytri Njarðvíkurkirkju í gærkvöldi.
Á dagskránni eru jólalög úr ýmsum áttum, bæði íslensk og erlend. Meðal annars mun kórinn flytja lag Suðurnesjatónskáldsins Sigurðar Sævarssonar, Þeir hringdu hljómþungum klukkum, en það var valið jólalag RÚV árið 2010. Einnig verða fluttar jólaperlur eins og Hin fyrstu jól eftir Ingibjörgu Þorbergs, Hvít jól eftir Irving Berlin, Ave Maria eftir J.S. Bach og Leppur, Skreppur og Leiðindaskjóða eftir Gunnar Þórðarson við texta Halla, Ladda og Gísla Rúnars, auk fleiri fallegra og skemmtilegra jólalaga sem munu án efa koma tónleikagestum í jólaskapið.
Stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja er Dagný Þórunn Jónsdóttir og meðleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir.
Miðasala er hjá kórkonum og er miðaverð í forsölu kr. 1500. Hægt er að panta miða í forsölu í síma 898 7744 og 897 4776 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]. Einnig verða seldir miðar við innganginn og verður miðaverð þá kr. 2000. Frítt er fyrir börn 14 ára og yngri.
VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson