Sungið fyrir heimilisfólkið á Hlévangi
Nemendur úr 4. bekk í Heiðarskóla heimsóttu heimilisfólkið á Hlévangi föstudaginn 16. desember. Farið var með strætisvagni áleiðis um morguninn og gengið síðasti spölurinn. Krakkarnir sungu nokkur jólalög í matsalnum þar sem nokkur hópur heimilisfólks hafði komið sér fyrir til að hluta á sönginn.
Það var ekki annað að sjá og heyra en að áhorfendur kynnu vel að meta þessa heimsókn á aðventunni. Þegar söngnum lauk var boðið upp á smá hressingu og að því loknu var komið að kveðjustund. Gengið að næstu stoppistöð strætó og farið til baka í skólann.
Myndir og texti: Óskar Birgisson.