Sundfólk með jólabingó
	Sunddeild ÍRB heldur sitt fyrsta jólabingó í langan tíma í dag, föstudaginn 29. desember kl. 18:30 í Holtaskóla.
	Í tilkynningu frá sunddeildinni er sagt að flottir vinningar séu í boði og kaffisala á staðnum. Vakin er athygli á því að ekki sé posi á staðnum en verkefnið er fjáröflun sundmanna fyrir æfingaferð sumarið 2018.
				
	
				

 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				