Sunddagurinn mikli í Reykjanesbæ um helgina
Sunddagurinn mikli verður haldinn um allt land laugardaginn 27. ágúst n.k. en markmið hans er að gera sundíþróttina sýnilegri og fjölga nýjum iðkendum.
Sundsamband íslands Íslands og aðildarfélög sjá um skipulagningu dagsins og munu stjórnir sunddeilda Keflavíkur og Njarðvíkur bjóða upp á dagskrá honum tengdum í Sundmiðstöð Keflavíkur.
Frítt verður í sundmiðstöðina frá kl. 10:00 - 14:00 og munu sundþjálfarar ÍRB gefa fólki góð ráð varðandi skriðsund. Þau börn sem ekki æfa sund geta tekið þátt í örsundmóti sem hefst kl. 11:00. Sundið er 25 metrar með frjálsri aðferð og fá allir þátttakendur glaðning að lokinni keppni.
Deildirnar munu kynna starf sitt á staðnum og taka á móti skráningu á sundæfingar auk þess sem boðið verður upp á léttar veitingar.
Einnig mun Eignarhaldsfélagið Fasteign h.f. bjóða upp á kynningu á nýrri 50 m innisundlaug og vatnagarði sem nú er í byggingu og verður tekin í notkun á næsta ári.
Af vef Reykjanesbæjar