HSS
HSS

Mannlíf

Sumarspjallið: „Náttúrufegurð einnkennir íslenskt sumar“
Föstudagur 15. júlí 2011 kl. 10:21

Sumarspjallið: „Náttúrufegurð einnkennir íslenskt sumar“

Tónlistarkonan Gróa Hreinsdóttir svaraði nokkrum spurningum okkar varðandi sumarið sem skartar sínu skærasta í dag. Gróa er þessa dagana að spila hér og þar m.a í brúðkaupum og ýmsum viðburðum en hún er organisti í Hveragerðiskirju.

Hvernig hefur sumarið verið hingað til hjá þér?

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Í upphafi sumars (ef sumar skildi kalla) skrapp ég í viku til Danmerkur að heimsækja Hrein Gunnar sem vinnur þar með íslenska hesta. Hann járnar, temur og tekur þátt í mótum. Harpa Sól varð eftir í Danmörku og var að vinna á hestabúgarði. Helgina eftir að ég kom heim fór ég með kirkjukórnum í Hveragerði í helgarferð til Edinborgar. Hef svo verið mest heima að taka til eftir annasaman vetur.“

Hvað fer á grillið hjá þér?

„Grillið mitt er ennþá í Reykjavík .... en þegar ég er búin að flytja það til Hveragerðis, þá fer lambakjöt, fiskur og grænmeti á það.“

Á að ferðast eitthvað innanlands í sumar?

„Ég mun ferðast nokkrum sinnum milli lands og Eyja í sumar og vonandi kemst ég norður í ágúst í nokkra daga.“

En erlendis?

„Ekki fleiri utanlandsferðir þetta árið.“

Hvað á annars að gera í sumarfríinu?

„Ég vinn í sumarfríinu og er líka að undirbúa mig fyrir brúðkaup Guðmundar Óskars og Nínu sem verður 6. ágúst. Svo kíki ég stundum á litlu ömmustelpuna hana Ástríði Ösp.“

Hvað einkennir íslenskt sumar að þínu mati?

„Það sem einkennir íslenskt sumar á hverju ári er náttúrufegurð. Ég fæ aldrei nóg af að dást að hreina loftinu, fallegu litunum og yndislegu sólarlagi.“

Hvað á að gera um verslunarmannahelgina?

„Um verlsunarmannahelgina verð ég að stjórna kór við setningu Þjóðhátíðar í Eyjum. Tek svo örugglega Herjólf til lands þegar fjörið stendur sem hæst í Herjólfsdal.“

Mynd: Gróa á góðri stundu í Njarðvíkurkirkju