Sumarspjallið: Hvasst á daginn og logn á kvöldin
Davíð Arthur Friðriksson er nýkrýndur klúbbmeistari Golfklúbbs Grindavíkur. Ekki nóg með það heldur er hann nýbakaður faðir í þokkabót en hann og Dagmar Lóa kona hans eignuðust dreng nú í júlí. Davíð Arthur starfar sem slökkviliðsmaður hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli.
Hvernig hefur sumarið verið hingað til hjá þér?
„Bara flott, við eignuðumst dreng í júlí og ég varð klúbbmeistari GG í golfi í síðustu viku. Það var líka mikil upplifun að fara austur á Kirkjubæjarklaustur í hreinsunarstörf með slökkviliðinu.“
Hvað fer á grillið hjá þér?
„Kjúklingarbringur í BBQ og stór og mikil kartafla.“
Á að ferðast eitthvað innanlands í sumar?
„Nei ekkert svoleiðis, þó aldrei að vita nema að maður labbi upp á Esjuna í fyrsta sinn.“
En erlendis?
„Já ég er að fara á Heimsleika Slökkviliðsmanna í águst til New York að keppa í Ultimate Firefighter.“
Hvað á annars að gera í sumarfríinu?
„Njóta þess með fjölskyldunni og spila golf. Ekki má gleyma að spila fótbolta í utandeildinni með FC Keppnis.
Er eitthvað sem er einnkennandi fyrir íslenskt sumar að þínu mati?
„Það er hvasst á daginn og logn á kvöldin.“
Hvað á að gera um verslunarmannahelgina?
„Ekkert. Hjálpa tengdó með gistiheimilið og kannski kíkjum við eitthvað á rúntinn, hvað er langt til Eyja?“