Sumarspjall: Ragnheiður Elín fer til Eyja með fjölskyldunni
Alþingiskonan Ragnheiður Elín Árnadóttir hefur gert margt og mikið í sumar. Hún er nýkomin úr hringferð um landið og einnig heimsótti hún Bandaríkin fyrir skömmu. Ragnheiður Elín ætlar svo með allri fjölskyldunni til Vestmannaeyja um verslunarmannahelgina og hlakkar mikið til.
Hvernig hefur sumarið verið hingað til hjá þér?
Sumarið hefur verið afskaplega notalegt hjá mér í alla staði. Í mínu starfi er það nú yfirleitt þannig að vinnan er ekki langt undan, en það hefur tekist ágætlega í sumar að sameina þetta tvennt. Sumarið hefur því verið gott sambland vinnu og góðrar samveru með fjölskyldunni.
Hvað fer á grillið hjá þér?
Við grillum mikið á sumrin, bæði kjöt og fisk. Lambakjötið verður sennilega oftast fyrir valinu en grillaður humar – úr Suðurkjördæmi að sjálfsögðu – er sennilega það sem er í mestu uppáhaldi.
Á að ferðast eitthvað innanlands í sumar?
Við erum nýkomin úr hringferð um landið þar sem við lögðum af stað með tjaldið í skottinu, enga fyrirfram ákveðna næturstaði og eltum bara góða veðrið. Við tókum því rólega og heimsóttum ýmsa staði sem við keyrum öllu jafna framhjá og ég notaði tækifærið til að heimækja fólk og fyrirtæki í kjördæminu. Við gistum m.a. á tjaldstæðinu í Þykkvabænum, Höfn í Hornafirði og í Atlavík, og heimsóttum tengdaforeldra mína á Akureyri. Við vorum dugleg að prófa nýjar sundlaugar vítt og breytt um landið og stendur nýja laugin á Hofsósi upp úr.
En erlendis?
Við fórum í dásamlegt frí til Bandaríkjanna í byrjun júlí og heimsóttum góða vini bæði í Washington og New York, en ég bjó á báðum stöðum fyrir nokkrum árum.
Hvað á annars að gera í sumarfríinu?
Það fer nú að styttast í fríinu hjá okkur og verkefnið framundan er að snúa fjölskyldunni aftur í venjubundnu rútínuna. Við eigum þó eftir að fara í sumarbústað í Húsafelli og vonandi ná einni útilegu með stórfjölskyldunni fyrir sumarlok. Svo vonast ég að sjálfsögðu eftir fleiri frábærum sólardögum á pallinum okkar á Heiðarbrúninni, en þeir hafa verið margir góðir í sumar.
Er eitthvað sem er einnkennandi fyrir íslenskt sumar að þínu mati?
Íslenska sumarið er engu öðru líkt og það er ekkert sem getur toppað fallegan sumardag og bjartar sumarnætur. Einstakt sambland ljóss og lita gerir íslenska sumarið algerlega einstakt.
Hvað á að gera um verslunarmannahelgina?
Við ætlum að fara öll fjölskyldan á þjóðhátíð í Eyjum og hlökkum mikið til. Við höfum farið þangað undanfarin ár og má segja að við séum komin með þjóðhátíðarbakteríuna... og lífið er yndislegt!