HSS
HSS

Mannlíf

Sumarspjall: Eiginmaðurinn grillmeistari
Laugardagur 16. júlí 2011 kl. 10:44

Sumarspjall: Eiginmaðurinn grillmeistari

Anna Pála Magnúsdóttir er 32 ára Keflvíkingur sem starfar hjá Sjúkraþjálfun Suðurnesja. Hún segir sumarið snúast að miklu leiti um knattspyrnu enda er eiginmaður hennar knattspyrnukappinn Guðmundur Steinarsson og eru synir þeirra einnig í boltanum.

Hvernig hefur sumarið verið hingað til hjá þér?
„Sumarið hefur verið mjög fínt og á bara eftir að verða betra, er að detta í sumarfrí og ætla að njóta þess í botn með fjölskyldu og vinum.“

Hvað fer á grillið hjá þér?
„Á sumrin fer eiginlega allt á grillið á mínu heimili, enda eiginmaðurinn annálaður grillmeistari.“

Á að ferðast eitthvað innanlands í sumar?
„Það er ansi lítið um ferðalög hjá okkur fjölskyldunni á sumrin, helst bara á þessa helstu fótboltavelli. Ég fór nú samt á Akureyri með synina þar sem sá eldri var að keppa á N1 mótinu og það var mikið stuð.“

En erlendis?
„Nei nota haustin í það þegar fótboltatímabilinu lýkur.“

Hvað á annars að gera í sumarfríinu?

„Njóta þess í botn að vera með sonum mínum og fara á völlinn og styðja mína menn: Áfram Keflavík!“

Er eitthvað sem er einnkennandi fyrir íslenskt sumar að þínu mati?
„Bjartar nætur, sangría og sól, og ekki má gleyma ilminum af nýslegnu grasin.“

Hvað á að gera um verslunarmannahelgina?

„Það stendur mikið til þessa verslunarmannahelgi, Goggaleikarnir 2011 verða haldnir hér í bæ og þar verður keppt í hinum ýmsu greinum. Við Stellurnar höfum æft stíft og af krafti og ætlum að selja okkur dýrt þetta árið og hirða titilinn.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn