Sumarnámskeið, myndasyrpa
Börn í Reykjanesbæ þurfa ekki að láta sér leiðast í sumar því í boði eru ýmis námskeið og uppákomur fyrir yngstu kynslóðina. Þar má nefna skólagarða, kofasmíð, íþrótta- og leikjaskóla, sportköfunarnámskeið, golfkennslu, sundnámskeið, reiðskóla og svo mætti lengi telja. Ljósmyndari Víkurfrétta kíkti á krakka á golfnámskeiði og sundnámskeiði og skemmtu þau sér vel í blíðunni.
Myndirnar má finna í myndasafninu.
Vf-myndir: MSJ.