Sumarmót Bylgjunnar í Keflavík 28. júní

Þetta er ekki allt því einnig verður haldið geggjað golfmót.
Vinningar í hverju móti eru sérlega glæsilegir: Utanlandsferðir, gisting fyrir tvo á Edduhóteli að eigin vali, frábær CharBroil-gasgrill, Playstation 2 leikjatölvur og golfvörur frá Hole in One eru meðal vinninga. Í lok sumars verður dreginn út glæsilegur Nissan Primera, og já… bíllinn fer út! Allt getur gerst með góðri sveiflu og smá heppni.
Við höldum glæsilega grillveislu með golfinu þar sem grillmeistari frá CharBroil setur náttúrlega íslenskt lambakjöt á grillið…nammi namm.
Smelltu á golf.is og skráðu þig til leiks, skelltu golfsettinu og gleðinni beint í bílinn og þú og Bylgjan farið saman í fríið á Sumarmóti Bylgjunnar 2003.
Allar upplýsingar á www.bylgjan.is
Sjáumst á Sumarmóti Bylgjunnar!