Sumarkomu fagnað með skrúðgöngu
Skátarnir og Tónlistarskólinn fagna sumarkomu með íbúum Reykjanesbæjar á morgun, sumardaginn fyrsta, og munu leiða hina árlegu skrúðgöngu sem hefst við skátaheimilið að Hringbraut 101, Reykjanesbæ kl. 12:00
Bæjarbúar eru kvattir til að mæta í gönguna með fánaveifur í tilefni sumarkomu og barnahátíðar í Reykjanesbæ.
Gengið verður upp Hringbraut, inn á Faxabraut og niður Hafnargötu að Keflavíkurkirkju. Messan hefst kl.12:30. Prestur er séra Sigfús Baldvinsson. Allir bæjabúar eru velkomnir.
Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá við skátaheimilið frá Kl. 14:00 - 16:00. Þar verður hinn sívinsæli klifurturn og allir geta fengið að prófa. Skátaheimilið verður opið og eru bæjabúar hvattir til að koma og skoða heimilið og fræðast um starfið sem þar fer fram.
Bandalag íslenskra skáta er verndari þjóðfánans og í tilefni dagsins, verður boðið upp á stutt námskeið í meðhöndlun og umgengnisreglum íslenska fánans. Námskeiðið hefst kl. 14:30.
Hefbundnar skátaveitingar verða í boði á meðan á dagskrá stendur.
--
VFmynd/elg.