Sumarið á Íslandi í myndum
Sandgerðisdagar hefjst í næstu viku og af því tilefni mun ljósmyndaklúbburinn 245Pixlar þar í bæ halda ljósmyndasýningu í efri sal Fræðasetursins í Sandgerði.
245Pixlar er félag áhugamanna um ljósmyndun sem hefur verið starfrækt í Sandgerði frá árinu 2008. Sýningin ber titilinn „Sumar á Íslandi“ og eins og titillinn ber með sér munu félagsmenn sýna sumarlitina í öllum sínum blóma og birta mannlíf líðandi stundar.