Sumarhátíð á Heiðarseli
Solla stirða var hress og kát á sumarhátíðinni hjá leikskólanum Heiðarseli í Reykjanesbæ í dag. Krakkarnir fengu andlitsmálningu í góða veðrinu og vitaskuld var grillað ofan í hópinn sem skemmti sér hið besta á hátíðinni.
Sumarhátíðin var vel sótt af foreldrum og öðrum aðstandendum barnanna og ekki var annað að sjá en að ungir og aldnir hefðu gaman af.
Sjá hér til hliðar á síðunni myndasafn frá Sumarhátíðinni