Suðurnesjamenn í Óperunni
Davíð Ólafsson óperusöngvari er borinn og barnfæddur Keflvíkingur, en Davíð syngur í uppfærslu Íslensku Óperunnar á Rakaranum frá Sevilla. Davíð syngur hlutverk Doktor Bartolo í sýningunni, en nú er síðasti sýningarmánuður Rakarans frá Sevill í Íslensku Óperunni. Í næstu Víkurfréttum geta lesendur fylgst með Davíð Ólafssyni baksviðs fyrir sýningu, en mikið gengur á þar enda um mannmarga sýningu að ræða. Leikstjóri óperunnar er Ingólfur Níels Árnason en hann er einnig Suðurnesjamaður í húð og hár.