Suðurnesjamenn á Unglingalandsmót UMFÍ
Margar fjölskyldur af Suðurnesjum stefna á Unglingalandsmót UMFÍ í Þorlákshöfn um Verslunarmannahelgina.
Þetta er 11. unglingalandsmótið og liggur dagskrá mótsins fyrir. Keppt verður í fjölmörgum íþróttagreinum og er mótið fyrir alla á aldrinum 11-18 ára. Keppendur þurfa ekki að vera í íþróttafélagi til að taka þátt.
Dagskrá mótsins verður mjög fjölbreytt og ýmsir menningar- og listviðburðir verða fyrir unga sem aldna. Auk þess verður fjöruhlaup, dorgveiði, markaðstorg og ýmis leiktæki.
Hægt verður að skrá sig til þátttöku til miðnættis 30. júlí á vef mótsins.
Dagskrá mótsins er að finna hér.
Myndir af vef UMFÍ frá landsmótinu 2007.