Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Suðsuðvestur opnar nýja sýningu
Þriðjudagur 26. júlí 2011 kl. 11:04

Suðsuðvestur opnar nýja sýningu

Föstudaginn 29. júlí kl.4. opnar sýningin „How not to become an artist“ í húsnæði Suðsuðvestur á Hafnargötu. Sýningarstjóri er Iris van Gelder, sem nýverið snéri kvæði sínu í kross, hvað varðar starfsferil. Hún segir ástæður þessarrar sýningar fyrst og fremst vera þörf sína fyrir breytta sjálfsmynd.

„Eftir að ég lauk námi í Rietveld Akademíunni 2010 var mér boðið af stofnunum í Hollandi auk sýningarrýmisins Suðsuðvestur að sýna.
Eftir hálfs árs umhugsun breyttust hugmyndir mínar og ég lagði í staðinn fram verkefni sem fjallar um „Hvarf og birtingu.“ Þar sem ég skipti um hlutverk, hverf úr hlutverki jóðlandi listamanns í sýningarstjóra. Mér fannst ég þurfa að hverfa sem listamaður og birtast í öðru hlutverki,“ segir Iris.

Listamönnunum Karin Sander, Stefan Alber, Falke Pisano, Karin Hasselberg og John M Armleder er boðið að taka þátt sökum verka sem þau hafa unnið sem hafa yfir sér blæ farandsýninga, flökkudýra og felulita sem laga sig að umhverfinu.

Karin Sander hefur haldið þó nokkrar sýningar hérlendis og er þekkt fyrir glansandi veggi og egg sem spegla síbreytilegt umhverfi. Málverk númer 60 hefur ferðast sem óinnpakkað listaverk til marga borga og bæja og í tilefni þessarrar sýningar sendi listamaðurinn listaverkið víðförla frá Berlín með viðkomu í Amsterdam og þaðan áfram til Reykjanesbæjar, þangað kom það að viðbættu hnjaski og óhreinindum. Upprunalega hvítur striginn er horfinn og í hans stað birtist strigi þakinn uppsöfnuðum óhreinindum.

Stefan Alber var boðið af Karin Sander. Verk hans fjallar um hreyfingar hests í haga sem hann upplifði þegar hann átti leið hjá í járnbrautarlest á ferð. Útkoman sem er ljósmyndaskúlptúr fjallar fyrst og fremst um hreyfingu og það að fara framhjá einhverju á ferð í landslagi með síbreytilegt sjónarhorn.


Falke Pisano er listamaður sem er þekkt fyrir verk sín sem umbreyta skúlptúrum í tungumálaverk. Verknaðurinn felst í að gera hlutbundið listaverk sem breytist smám saman í verk talaðs tungumáls. Dæmigert verk um hvarf og birtingu splunkunýs líkamslauss verks.

Karin Hasselberg var boðið af Falke Pisano. Hún byrjaði að grafa holur árið 2004 þar sem hún leitaðist við að finna tengsl sín við strúktúra sem fyrirfinnast í þjóðfélaginu og í listheiminum. Hún er þeirrar skoðunar að skilningur á hugmyndafræði stjórnarfyrirkomulags sem varðar þjóðfélagslega og efnahagslega uppbyggingu sé fyrsti áfanginn í að verða sér meðvitaður um þá staðreynd. Annars vegar er tillgangur viðveru hennar sem listamanns að mynda tengsl við fyrrnefnda ráðandi strúktúra.


John M Armleder var boðið vegna viðleitni sinnar til að mynda samruna úr öllu og öllum sem eiga þátt í gerð verka hans. Sökum tilviljana afsalar hann sér í mörgum tilfellum hlutverki leikarans, þó birtist hann samtímis sem listamaður er kýs að vinna útfrá hugmyndafræðilegum grunni og í sýnilegri útkomu verkanna ræður fagurfræðin ríkjum.

Sýningarskrá í litlu upplagi er gefin út í tilefni sýningarinnar og er fáanleg í Suðsuðvestur.

Kl.5 á opnunardaginn munu Hildur Ásgeirsdóttir og Iris van Gelder flytja jóðllag nefnt ‘Battle’, sem samið er af sýningarstjóranum.

Suðsuðvestur er á Hafnargötu 22 í Keflavík.

Opið um helgar frá kl.2 til kl.5 og eftir samkomulagi í síma; 662 8785.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024