Styttist í Bláalónshlaupið 2002

Skráning hefst kl 11:00 á baðstaðnum við Bláa lónið. Að skráningu lokinni verður þátttakendum ekið með Þingvallaleið til Grindavíkur og hefst hlaupið þar kl 13:00. Hlaupið endar á baðstaðnum við Bláa lónið þar sem öllum þátttakendum verður boðið í lónið. Þátttakendur fá einnig Powerade drykkinn í boði Vífilfells og auk þess verðlaunapening og bol.
Keppt verður í 6 og 12 km vegalengdum karla og kvennaflokki og verða verðlaun veitt fyrir fyrsta annað og þriðja sæti.Aðalverðlaun hlaupsins eru útdráttarverðlaun sem eru ferð fyrir tvo að eigin til einhvers áfangastaðar Icelandair i Evrópu. Verðlaunin eru í boði Icelandair.
Þátttökugjald er kr 1000,- fyrir fullorðna og kr 500,- fyrir börn. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 420 8800 og á netfanginu [email protected]
Myndin: Hlaupið verður eftir nýjum vegi frá Bláa lóninu til Grindavíkur. VF-mynd: Hilmar Bragi