Stytta Ólafs Thors í Reykjanesbæ lýst með kösturum
Stytta af Ólafi Thors, fyrrverandi forsætisráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, var lýst með kösturum á föstudagskvöld, en hún stendur fyrir aftan húsakynni sýslumannsembættisins í Reykjanesbæ. Davíð Oddsson, forsætisráðherra og formaður flokksins, kveikti á ljósunum en Áki Gräns, höfundur styttunnar, hélt einnig tölu um tilurð verksins. Fjöldi manns fylgdist með því þegar kveikt var á kösturunum.
Listamaðurinn, Áki Gräns flutti tölu um tilurð verksins og Davíð sagði gamansögur af Ólafi Thors.
Listamaðurinn, Áki Gräns flutti tölu um tilurð verksins og Davíð sagði gamansögur af Ólafi Thors.