Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Styrktartónleikar í Fríkirkjunni
Þriðjudagur 19. desember 2006 kl. 10:03

Styrktartónleikar í Fríkirkjunni

Stórtónleikar verða haldnir í Fríkirkjunni í Reykjavík á morgun miðvikudag til styrktar Grétu Rósný Jónsdóttur og dætrum hennar þremur sem misstu fjölskylduföðurinn Jóhann Fannar Ingibjörnsson í bílslysi síðastliðið sumar.

Tónleikarnir, sem hefjast kl. 20, eru á vegum kirkjukórs Lágafellssóknar í Mosfellsbæ en á tónleikunum koma fram sumir af ástsælustu listamönnum þjóðarinnar.

Þeir sem koma fram á tónleikunum auk kirkjukórs Lágafellssóknar, sem er undir stjórn Jónasar Þóris eru:

Sigrún Hjálmtýsdóttir   (Diddú)
Egill Ólafsson
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Bergþór Pálsson
Margrét Árnadóttir
Ívar Helgason
Hanna Björk Guðjónsdóttir 
Björg Birgisdóttir
Anna Sigríður Helgadóttir
Margrét Eir
Páll Óskar og Monika

Strengjasveit:
Eva Harðardóttir, Sigrún Harðardóttir, Hjörleifur Valsson og Sveinn Birgisson ásamt mörgum öðrum tónlistarmönnum.

Aðgangseyrir verður 2000 kr.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024