Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Styrktartónleikar fyrir MND félagið
Mánudagur 11. október 2010 kl. 14:52

Styrktartónleikar fyrir MND félagið

Laugardaginn 23. október næst komandi mun hópur listamanna, undir forystu Kristjáns Jóhannssonar óperusöngvara, efna til tónleika í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði til styrktar MND félaginu á Íslandi. Með Kristjáni verða nokkrar skærustu söngstjörnur landsins og munu þau flytja létt-klassísk verk, einsöngslög og dúetta sem höfða til breiðs hóps áheyrenda. Listafólkið gefur vinnu sína og rennur allur ágóði til íbúðasjóðs MND félagsins.

Auk Kristjáns Jóhannssonar koma fram á tónleikunum Anna Sigríður Helgadóttir mezzosópran, Gissur Páll Gissurarson tenor, Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Kristján Ingi Jóhannesson bassi, Lilja Eggertsdóttur sópran og Valgerður Guðnadóttur sópran. Undirleik annast Jónas Þórir en kynnir á tónleikunum verður Jóhann Sigurðarson leikari.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

MND félagið vinnur nú að því að koma upp íbúð sem mikið hreyfihamlað fólk af landsbyggðinni á að geta fengið afnot af þegar það kemur til læknismeðferða í höfuðborginni. Einnig er gert ráð fyrir að hreyfihamlaðir íbúar á höfuðborgarsvæðinu geti fengið tímabundin afnot af íbúðinni þurfi þeir að yfirgefa eigin íbúð, til dæmis á meðan unnið er að breytingum á þeim.

„Við erum ákaflega þakklát þessu frábæra listafólki sem hefur ákveðið að styðja okkur í að koma upp aðstöðu sem brýn þörf er fyrir,“ segir Guðjón Sigurðsson formaður MND félagins. Guðjón segir að stefnt sé að því að íbúðin verði innréttuð samkvæmt ítrustu kröfum sem gerðar eru til húsnæðis fyrir mikið hreyfihamlaða einstaklinga og verði þannig fyrirmynd sem fagfólk og aðrir sem vinna að búsetumálum fatlaðra geti haft til hliðsjónar þegar þeir breyta eða hanna íbúðir fyrir fatlaða. MND félagið stefnir að því að taugalækningadeild Landsspítalans fái íbúðina til ráðstöfunar fyrir þá einstaklinga sem koma til meðferðar á deildinni.

Tónleikarnir í Víðistaðakirkju hefjast klukkan 17:00 laugardaginn 23 október. Forsala aðgöngumiða er hafin á www.miði.is og kostar miðinn 3500 krónur. Óseldir miðar verða til sölu við innganginn.

Myndin: Fulltrúar úr stjórn MND félagsins þeir Kristinn Guðmundsson og Guðjón Sigurðsson ásamt söngvurum sem koma fram á tónleikunum í Víðistaðakirkju. Frá vinstri: Hallveig Rúnarsdóttir, Valgerður Guðnadóttir, Kristján Ingi Jóhannesson, Kristján Jóhannsson, Lilja Eggertsdóttir, Gissur Páll Gissurarson og Anna Sigríður Helgadóttir.