Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Styrktartónleikar fyrir Bryndísi Evu á Ránni annað kvöld
Miðvikudagur 1. febrúar 2006 kl. 17:02

Styrktartónleikar fyrir Bryndísi Evu á Ránni annað kvöld

Tónleikar verða haldnir á Ránni annað kvöld til styrktar Bergþóru Ólöfu Björnsdóttur og Hjörleifi Jóhannssyni, foreldrum Bryndísar Evu, tæplega níu mánaða stúlku sem liggur á Barnaspítala Hringsins og hefur verið án meðvitundar síðan 5. desember.

Ítarlegt viðtal er við þau Bergþóru og Hjörleif í Víkurfréttum sem koma út á morgun.

Á tónleikunum gefst öllum kostur á að styrkja þau í baráttunni og hlýða á góða tónlist í kaupbæti. Aðstandendur tónleikanna hvetja alla til að senda Bryndísi Evu og foreldrum hennar styrk, kærleika og orku og minna á heimasíðuna þeirra. www.bebbaoghjolli.blogspot.com

Tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Aðgangseyrir er 500 kr. en frjáls framlög eru vel þegin. Fram koma: Hanna Björg, Hlynur Vals, Matti Óla, Óli Þór, Rúnar Júlíusson, Svavar Knútur og Tabula Rasa.

Styrktarreikningur Bryndísar Evu er í Sparisjóðnum í Keflavík : 1109-05-410900 og kennitalan er 290681-5889.

VF-mynd/Þorgils
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024