Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Mannlíf

Styrktarsýning á söngleiknum FRELSI í Heiðarskóla
Miðvikudagur 16. mars 2016 kl. 14:54

Styrktarsýning á söngleiknum FRELSI í Heiðarskóla

Föstudaginn 11.mars frumsýndu nemendur á unglingastigi Heiðarskóla söngleikinn Frelsi í leikstjórn Guðnýjar Kristjánsdóttur og Maríu Óladóttur. 

Tvær almenningssýningar voru haldnar fyrir fullum sal skólans á mánudags og þriðjudagskvöld og nú hefur verið ákveðið að bæta við einni aukasýningu í kvöld, fimmtudag kl. 20.00. Allur ágóði sýningarinnar mun renna til Krabbameinsfélags Suðurnesja en komin er hefð fyrir því að standa fyrir einni slíkri sýningu á ári. 

Nú geta bæjarbúar og aðrir áhugasamir komið og séð  frábæra nemendasýningu og um leið  látið gott af sér leiða með því að styrkja Krabbameinsfélag Suðurnesja.

Sýningin hefst kl. 20.00 á sal Heiðarskóla og er miðaverð 500 kr fyrir nemendur skólans en 1000 kr fyrir aðra.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25