Styrktarátak Nettó og Ljóssins
Unnur Stella hannar fyrir Ljósið
Í júlímánuði hófst á ný styrktarátak Nettó og Ljóssins og verður nú hægt að versla varning til styrktar Ljósinu í öllum verslunum Nettó. Í ár fékk markaðsteymi Ljóssins og Nettó Unni Stellu Níelsdóttur, myndlistarkonu og eiganda Start Studio, að borðinu til að hanna listaverk fyrir átakið og er afurðin m.a. einstaklega fallegur taupoki sem er til sölu í verslunum Nettó um allt land. Allur ágóðinn rennur óskiptur til endurhæfingar fólks sem hefur greinst með krabbamein. Þetta er í annað skiptið sem Ljósið fer í samstarf við Nettó en í fyrra söfnuðust fimm milljónir í sambærilegu átaki.
Krabbamein kemur öllum við
Ljósið byggir á hugmyndafræði iðjuþjálfunar. Áhersla er lögð á heildræna nálgun og að veita endurhæfingu fyrir alla þá sem greinast með krabbamein, sextán ára og eldri. „Við veitum líka þjónustu við aðstandendur og það hefur Ljósið alltaf gert, því krabbamein kemur öllum við og hefur mikil áhrif,“ segir Þórhildur Sveinsdóttir, einn af iðjuþjálfum Ljóssins. „Þegar fólk kemur í Ljósið veit það að það er að fara í líkamlega endurhæfingu, það veit að það fær heilmikla fræðslu um hreyfingu, næringu, um sjálfsmyndina og álagið, en það veit kannski ekki hvað þessi jafningjastuðningur er mikils virði.“
Viðtöl við fagaðila kosta þau sem leita til Ljóssins ekki neitt og önnur þjónusta er niðurgreidd. Fólk sem greinist með krabbamein utan höfuðborgarsvæðisins getur nýtt sér fjarfundarbúnað.
Keramik er núvitund
Keramikgerð er sérstaklega vinsæl í Ljósinu og þar hafa ótrúleg listaverk orðið til. Listakonan Unnur Stella gerir einnig keramikverk og hafði hrifist af bollum sem urðu til í „leirverksmiðju“ Ljóssins.
„Þegar mér bauðst að vera partur af þessu samstarfi fannst mér það strax frábær hugmynd enda einstakur málstaður og skemmtilegt verkefni,“ segir Unnur Stella. „Mér skilst að þau hjá Ljósinu hafi hrifist af litunum í mínum verkum og þegar ég kom í fyrsta skiptið í Ljósið þá skildi ég hvernig verkin mín passa við þeirra anda. Það er eins og ljós að koma þarna inn, allt svo litríkt og hlýtt.“
Verkið hennar er af kaffihlaðborði og heitir „Skína“.
Heimilisleg stemmning
„Það eru einhverjir töfrar hér í Ljósinu. Hér eru allir jafnir, það skiptir ekki máli hvaðan þú kemur. Þetta snýst hvorki um stétt né stöðu heldur skilur fólk egóið sitt eftir þegar það labbar hérna inn,“ segir Heiða Eiríksdóttir sem sinnir markaðs- og kynningarmálum fyrir Ljósið. Henni finnst Unni Stellu hafa tekist vel til við að fanga þetta andrúmsloft.
„Hún kom hérna í heimsókn og við kynntum starfsemina fyrir henni og hún gerði þetta ótrúlega fallega verk sem er alveg „spot on“ og lýsir svo mikið þessari heimilislegu, fallegu stemmningu sem er hér innanhúss.“
Dýrmætt samstarf
Ljósið er að hluta til á fjárlögum frá ríkinu fyrir hluta af launum starfsfólks, útskýrir Heiða. „Að öðru leyti treystum við á góðvild einstaklinga, fyrirtækja og alls konar félaga sem koma og styrkja starfið með alls kyns hætti. Þess vegna er verkefni eins og þetta svo ótrúlega mikilvægt og dýrmætt. Þetta fer allt beint til fólksins sem virkilega þarf á því að halda.“
Heiða segir tilvalið að bjóða upp á vörur átaksins í verslunum Nettó. „Þær er á öllu landinu sem tengist svo fallega við landsbyggðadeildina okkar í Ljósinu. Við stefnum á að láta sjá okkur í einhverjum af verslununum úti á landsbyggðunum í júlí og heilsa upp á fólkið okkar. Vonandi sjáumst við þar!“
Litríkt og hlýtt
„Ljósið er hæst á lofti í júlí. Þá eru allir á ferðinni og vantar sundpoka og spil fyrir útileguna. Ljósið vinnur gífurlega mikilvæga vinnu og við erum stolt að geta tekið þátt í þessu samstarfi með þeim og Unni Dís“, segir Helga Dís Jakobsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri Nettó. „Í fyrra gekk verkefnið vonum framar. Við söfnuðum 5 milljónum fyrir Ljósið og það var gaman að sjá að pokarnir urðu „trend“. Við erum mjög spennt að sjá hvort það sama gerist í ár.“
Styrktarátak Nettó og Ljóssins hófst þann 1. júlí og varir út júlímánuð. Auk sundtöskunnar og spilsins Jenga, sem verk Unnar Stellu prýðir, rennur hluti af ágóða sölu Coop salernispappírs og Folkington’s safa í glerflöskum til Ljóssins í júlí. Vörurnar fást í Nettó um allt land og á netto.is.