Styrkjum varnir líkamans heilsusamlega
Á þessum árstíma þegar kvef og flensur herja á okkur er ekki úr vegi að nýta okkur einföld og náttúruleg ráð til þess að fyrirbyggja eða reyna að vinna bug á þessum árlegu pestum. Ónæmiskerfi okkar er upp á sitt besta ef við fáum nægan svefn, borðum fjölbreytta fæðu, hreyfum okkur og þegar við erum jákvæð og bjartsýn á lífið. Einnig er mikilvægt að hafa stjórn á streitu og álagi í kringum okkur en streituhormónin geta haft hamlandi áhrif á starfssemi ónæmiskerfisins og gert okkur móttækilegri fyrir ýmsum sýkingum. Nýlega hefur komið í ljós að heilbrigð þarmaflóra í meltingarvegi eigi einnig þátt í heilbrigðu ónæmiskerfi.
Eftirfarandi ráð eru talin gagnleg gegn kvef og flensupestum.
Nauðsynlegt að drekka nægan vökva og þá sérstaklega hreint vatn og góð te.
Tíður og almennur handþvottur mikilvægur til þess að koma í veg fyrir smit.
Neyta fæðu sem inniheldur mikilvæg næringarefni fyrir ónæmiskerfið s.s. gulrætur, appelsínur, dökk ber, rauðrófur, laukar, paprikur, feitur fiskur og omega 3 fitusýrur, fræ og hnetur, hreint jógúrt sem inniheldur góða meltingargerla.
Gott að borða ríkulega af grænmeti og ávöxtum og nota heitar grænmetissúpur.
Heitt bað með ilmkjarnaolíum s.s. eucalyptus eða tee tree olíu.
Fjölmargar lækningajurtir eru áhrifaríkar gegn kvefi og flensum s.s. ætihvönn, engifer, blóðberg, cayenne pipar, lakkrísrót, vallhumall, hvítlaukur, sólhattur, ólífulauf.
Heimagerð kvefblanda:
5 sneiðar fersk engiferrót
2-3 hvítlauksrif
¼ - ½ tsk cayenne pipar
1 kreist sítróna
Smá hunang ef vill
Setjið í 1 L sjóðandi vatn og látið standa í 20 mín
Sigtið frá og bæta við sítrónu og hunangi
Drekka reglulega yfir daginn
Heilsukveðja,
Ásdís grasalæknir.