Studdu Mottumars á strákadegi
- Aðeins herraklippingar í einn dag.
Skvísurnar á hárstofunni Hár og rósir í Innri-Njarðvík breyttu um stíl og áherslur í dag og blésu til strákadags. Þær skreyttu sig með slaufum og bindi og buðu aðeins upp á herraklippingar þennan dag. Ekki var tekið við tímapöntunum, heldur ráku viðskiptavinir, á ýmsum aldri, inn nefið og gæddu sér á veitingum á meðan þeir biðu eftir góðri þjónustu.
Afrakstur innkomu dagsins verður varið til að styðja Ómar Jóhannsson og Mottumars 2014.
Olga Björt leit við og smellti af myndum.