HSS
HSS

Mannlíf

Stórtónleikar Kristjáns Jóhannssonar í dag - miðasala einnig í Stapa 13-17
Laugardagur 27. mars 2010 kl. 09:43

Stórtónleikar Kristjáns Jóhannssonar í dag - miðasala einnig í Stapa 13-17

Tónleikar Kristjáns Jóhannssonar, tenórs og einn mesta söngvara Íslands fyrr og síðar og söngvina hans verða í nýjum Stapa í Njarðvík í dag kl. 17. Miðasala er á midi.is og einnig verða seldir miðar við innganginn í dag frá kl.13 til 17.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Við hlökkum mikið til að syngja í nýjum Stapa með stóra hljómsveit með okkur og síðast en ekki síst, tvo frábæra söngvara frá Suðurnesjum. Flygillinn í húsinu þykir einn sá besti á landinu og svo þykir húsið frábært til tónleikahalds,“ sagði Kristján í samtali við vf.is.


„Ég er mjög stoltur að fá að taka þátt í þessum stórtónleikum og vera einn af söngvinum hans,“ segir Jóhann Smári Sævarsson, bassi og einn af stórsöngvurum okkar Suðurnesjamanna. Aðrir söngvarar eru Keflvíkingurinn Rúnar Þór Guðmundsson en meðal annarra söngvara eru Gissur Páll Gissurarson tenór og Erla Björk Garðarsdóttir, sópran og undirleikur er í höndum hljómsveit Hjörleifs Valssonar sem þykir sú besta á landinu.

Tónleikarnir hefjast kl.17 og eru Suðurnesjamenn hvattir til að mæta í Stapann á menningarviðburð sem er ekki á hverjum degi hér á svæðinu.