HSS
HSS

Mannlíf

Stórtónleikar í Keflavíkurkirkju
Laugardagur 3. maí 2014 kl. 07:10

Stórtónleikar í Keflavíkurkirkju

Óskar Einars og Gospelkór Lindakirkju halda tónleika í Keflavíkurkirkju, miðvikudagskvöldið 7. maí kl. 20:00.
 
Þessa listamenn þarf vart að kynna áhugafólki um gospeltónlist en Óskar Einarsson hefur um langt skeið verið fremstur meðal jafningja í þeirri tónlistargrein og unnið frábært starf að listsköpun og tónlistarflutningi.
 
Tónleikarnir eru til styrktar orgelsjóði Keflavíkurkirkju.
 
Miðaverð er kr. 1500 og ekki verður posi við innganginn svo fólk þarf að hafa aurana meðferðis!
 
Fjölmennum og njótum sannkallaðrar tónlistarveislu!
Bílakjarninn
Bílakjarninn